Dómarabókin 3 - Biblían (2007)

1Þessar þjóðir lét Drottinn vera kyrrar til þess að reyna Ísrael með þeim, alla þá er ekkert höfðu haft að segja af öllum bardögunum um Kanaan.

2Þetta gerði hann einungis til þess að komandi kynslóðir Ísraelsmanna mættu kynnast hernaði, þær sem ekki höfðu kynnst honum fyrr.

3Þetta eru þjóðirnar: Fimm höfðingjar Filistea, allir Kanverjar, Sídonbúar og Hevítar, sem bjuggu á Líbanonsfjöllum, frá fjallinu Baal Hermon allt þangað er leið liggur til Hamat.

4Þeim var þyrmt til þess að reyna mætti Ísrael með þeim svo að ljóst yrði hvort þeir vildu hlýða boðum Drottins sem hann hafði gefið feðrum þeirra fyrir meðalgöngu Móse.

5Þannig bjuggu Ísraelsmenn meðal Kanverja, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta.

6Þeir gengu að eiga dætur þeirra, giftu sonum þeirra dætur sínar og þjónuðu guðum þeirra.

Sögur af dómurunumOtníel

7Ísraelsmenn gerðu það sem illt var í augum Drottins, gleymdu Drottni, Guði sínum, og þjónuðu bæði Baölum og Asérum.

8Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael svo að hann seldi þá í hendur Kúsan Rísjataím, konungi í Aram í Norður-Mesópótamíu, og Ísraelsmenn þjónuðu Kúsan Rísjataím í átta ár.

9Þá hrópuðu Ísraelsmenn til Drottins og Drottinn vakti upp hjálparmann sem hjálpaði Ísraelsmönnum, Otníel Kenasson, yngri bróður Kalebs.

10Andi Drottins var yfir honum og hann varð dómari í Ísrael. Hann fór í hernað, Drottinn gaf Kúsan Rísjataím, konung í Aram, honum á vald og hann reyndist Kúsan Rísjataím voldugri.

11Síðan var friður í landinu í fjörutíu ár. Þá andaðist Otníel Kenasson.

Ehúð

12Ísraelsmenn gerðu enn það sem illt var í augum Drottins. Þá efldi Drottinn Eglón, konung í Móab, gegn Ísrael af því að þeir gerðu það sem illt var í augum Drottins.

13Hann safnaði að sér niðjum Ammóns og Amaleks, fór því næst og vann sigur á Ísrael og þeir náðu pálmaborginni á sitt vald.

14Ísraelsmenn þjónuðu Eglón, konungi í Móab, í átján ár.

15Þá hrópuðu Ísraelsmenn til Drottins og Drottinn vakti upp mann þeim til hjálpar, Ehúð, son Gera Benjamínsniðja, en hann var örvhentur. Ísraelsmenn sendu hann með skatt á fund Eglóns, konungs í Móab.

16Ehúð hafði gert sér sverð tvíeggjað, alin að lengd. Hann gyrti sig því innanklæða á hægri hlið.

17Fór hann og færði Eglón Móabskonungi skattinn en Eglón þessi var mjög digur maður.

18Þegar hann hafði reitt fram skattinn lét hann þá fara sem borið höfðu skattinn.

19Sjálfur sneri hann aftur hjá steinstyttunum í Gilgal. Ehúð sagði við konung: „Ég á leynilegt erindi við þig, konungur.“ „Hafið hljótt,“ skipaði konungur og allir gengu út sem hjá honum stóðu.

20Þá gekk Ehúð til hans, þar sem hann sat einn í svalanum í þaksal sínum, og mælti: „Ég ber þér erindi frá Guði.“ Konungur reis þá úr sæti sínu.

21En Ehúð greip til vinstri hendinni og þreif sverðið á hægri hlið sér og lagði því í kvið honum.

22Gekk blaðið á kaf og upp yfir hjöltu svo að spikið huldi blaðið því að ekki dró hann saxið úr kviði hans og saurinn vall út.

23Síðan gekk Ehúð út um veröndina, lokaði dyrunum á þaksalnum á eftir sér og læsti þeim.

24Þegar hann var farinn komu þjónar konungs, sáu að dyrnar á þaksalnum voru lokaðar og sögðu: „Sjálfsagt er hann að létta á sér inni í svala herberginu.“

25Biðu þeir nú uns þeir tóku að blygðast sín og ekki lauk hann upp dyrunum að þaksalnum. Tóku þeir því lykilinn og opnuðu og lá þá húsbóndi þeirra dauður á gólfinu.

26En Ehúð komst undan meðan þeir töfðust. Hann var kominn fram hjá steinstyttunum og sloppinn til Seíra.

27Þegar hann var þangað kominn lét hann þeyta lúður á Efraímsfjöllum. Fóru Ísraelsmenn þá með honum ofan af hæðunum en hann fór fyrir þeim.

28Og hann sagði við þá: „Fylgið mér því að Drottinn hefur gefið óvini ykkar, Móabítana, ykkur á vald.“ Fóru þeir þá niður á eftir honum og náðu öllum vöðum á Jórdan yfir til Móab og létu engan komast þar yfir.

29Þá felldu þeir um tíu þúsund Móabíta. Voru það allt sterkir menn og hraustir en enginn komst undan.

30Þannig urðu Móabítar á þeim degi að beygja sig undir vald Ísraels. Var nú friður í landinu í áttatíu ár.

Samgar

31Eftir Ehúð kom Samgar Anatsson. Hann felldi sex hundruð manna af Filisteum með nautrekstrarstaf og frelsaði hann einnig Ísrael.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help