Sálmarnir 88 - Biblían (2007)

1Ljóð. Kóraítasálmur. Til söngstjórans. Syngist með makalatlagi. Hemansmaskíl Esraíta.

2Drottinn, Guð hjálpræðis míns,

ég hrópa til þín um daga,

um nætur er ég frammi fyrir þér,

3lát bæn mína koma fyrir þig,

hneig eyra þitt að kveini mínu.

4Ég er mettur af böli,

líf mitt nálægist hel,

5ég er talinn með þeim sem gengnir eru til grafar,

ég er sem magnþrota maður.

6Mér er fengin hvíla meðal dauðra,

eins og meðal fallinna sem liggja í gröf

og þú minnist ekki framar

því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.

7Þú hefur lagt mig í dýpstu gröf,

í myrkasta djúpið.

8Heift þín hvílir þungt á mér

og allir boðar þínir skella á mér. (Sela)

9Þú hefur fjarlægt vini mína frá mér,

gert mig að viðurstyggð í augum þeirra.

Ég er lokaður inni og kemst ekki út,

10augu mín eru döpruð af harmi.

Ég ákalla þig, Drottinn, dag hvern,

lyfti höndum mínum til þín.

11Gerir þú furðuverk vegna framliðinna

eða rísa skuggarnir á fætur til að lofa þig? (Sela)

12Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni,

frá trúfesti þinni í helju?

13Birtist undramáttur þinn í myrkrinu

og réttlæti þitt í landi gleymskunnar?

14En ég hrópa til þín, Drottinn,

bæn mín berst þér að morgni.

15Hví útskúfar þú mér, Drottinn,

og hylur auglit þitt fyrir mér?

16Ég var beygður og í dauðans greipum allt frá æsku,

áþján þín hvílir á mér, ég er örmagna orðinn.

17Glóandi heift þín gengur yfir mig,

ógnir þínar gera út af við mig,

18þær umlykja mig eins og vötn allan liðlangan daginn,

þrengja að mér úr öllum áttum.

19Þú hefur gert vini mína og vandamenn fráhverfa mér,

myrkrið er minn nánasti vinur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help