Síðari Samúelsbók 17 - Biblían (2007)

Húsaí blekkir Absalon

1Síðan sagði Akítófel við Absalon: „Leyf mér að velja tólf þúsund menn og veita Davíð eftirför í nótt,

2ráðast á hann á meðan hann er þreyttur og uppgefinn og skjóta honum skelk í bringu. Þá flýr allur her hans og ég get drepið konunginn einan.

3Síðan get ég leitt þjóðina til þín eins og brúði sem kemur til manns síns. Þannig fellur sá maður sem þú vilt feigan en herinn sleppur án áfalla.“

4Absalon og öllum öldungum Ísraels leist vel á þessa hugmynd.

5Samt sagði Absalon: „Kallið Arkítann Húsaí hingað svo að við getum einnig heyrt skoðun hans.“

6Þegar Húsaí kom sagði Absalon honum hvað Akítófel hafði lagt til og spurði: „Eigum við að fara að hans ráðum? Ef ekki skaltu segja það?“

7Húsaí svaraði Absalon: „Í þetta skipti hefur Akítófel ekki gefið gott ráð.“

8Og hann bætti við: „Þú þekkir föður þinn og menn hans og veist að þeir eru bardagahetjur og grimmir eins og birna á bersvæði sem rænd hefur verið húnum sínum. Faðir þinn er bardagamaður sem náttar ekki með hermönnum sínum.

9Nú hefur hann sjálfsagt falið sig í einhverjum helli eða annars staðar. En verði mannfall í liði okkar í upphafi og berist fréttin um það út verður sagt: Herinn, sem fylgir Absalon, hefur beðið ósigur.

10Þá mun jafnvel ljónhugað hreystimenni missa kjarkinn því að sérhver Ísraelsmaður veit að faðir þinn er hetja og að þeir sem fylgja honum eru hraustmenni.

11Af þessum sökum legg ég þetta til: Kallaðu saman allan Ísrael frá Dan til Beerseba og fjöldinn verður sem sandkorn á sjávarströnd, og þú skalt sjálfur fara fyrir þeim.

12Þegar við finnum hann, hvar sem það verður, leggjumst við yfir hann eins og dögg leggst yfir jörðina. Þá mun enginn komast undan, hvorki hann sjálfur né neinn manna hans.

13Takist honum að hörfa inn í einhverja borg munum við Ísraelsmenn, allir sem einn, binda reipi utan um þá borg og draga hana niður í dalinn uns þar finnst ekki einu sinni steinvala.“

14Þá sagði Absalon og allir Ísraelsmenn tóku undir: „Ráð Húsaí Arkíta er betra en ráð Akítófels.“ En Drottinn hafði ákveðið að gera hið góða ráð Akítófels að engu því að Drottinn ætlaði að steypa Absalon í glötun.

Davíð kemst undan

15Húsaí sagði nú við prestana Sadók og Abjatar: „Akítófel lagði eitt til við Absalon en ég annað.

16Sendið nú þegar í stað mann til Davíðs með þessi skilaboð: Í nótt skaltu ekki láta fyrirberast við vöðin yfir til eyðimerkurinnar, farðu heldur þegar í stað yfir um svo að þú, herra konungur, verðir ekki gersigraður ásamt öllum hernum sem með þér er.“

17Jónatan og Akímaas biðu við Rógellind. Þjónustustúlka nokkur gekk þá til þeirra og flutti þeim skilaboðin og þeir fóru með þau til Davíðs konungs. Þeir máttu ekki láta sjá sig og gátu því ekki farið inn í borgina.

18Samt kom unglingur nokkur auga á þá og sagði Absalon frá því. En þeir Jónatan og Akímaas flýttu sér báðir á brott og fóru heim til manns nokkurs í Bahúrím. Í húsagarði hans var brunnur sem þeir fóru ofan í.

19Húsfreyjan sótti teppi, breiddi það yfir brunnopið og stráði síðan korni yfir svo að ekkert grunsamlegt sást.

20Þegar þjónar Absalons komu inn í húsið til konunnar spurðu þeir: „Hvar eru Akímaas og Jónatan?“ Hún svaraði: „Þeir fóru í áttina að vatninu.“ Þjónarnir leituðu án þess að finna þá og sneru aftur til Jerúsalem.

21Þegar þeir voru farnir komu báðir mennirnir upp úr brunninum. Þeir fóru síðan til Davíðs konungs, fluttu honum skilaboðin og sögðu einnig við hann: „Farið og flýtið ykkur yfir ána því að Akítófel hefur lagt á ráðin gegn ykkur.“

22Þá hélt Davíð af stað ásamt öllum hernum, sem með honum var, og fór yfir Jórdan. Þegar lýsti af degi voru allir komnir yfir Jórdan og var enginn eftir.

23Þegar Akítófel komst að raun um að ráði hans hafði ekki verið fylgt lagði hann á asna sinn og hélt til heimaborgar sinnar. Þar ráðstafaði hann eigum sínum. Síðan hengdi hann sig og lét þannig lífið. Hann var grafinn í gröf föður síns.

24Þegar Davíð kom til Mahanaím var Absalon kominn yfir Jórdan ásamt öllum Ísraelsher.

25Absalon hafði gert Amasa að yfirhershöfðingja í staðinn fyrir Jóab. Amasa var sonur Ítra frá Ísmael og Abígal. Hún var Nahasdóttir, systir Serúju, móður Jóabs.

26Ísraelsmenn og Absalon settu upp búðir sínar í Gíleað.

27Um leið og Davíð kom til Mahanaím komu Sóbí Nahasson frá Rabba í Ammón og Makír Ammíelsson frá Lódebar og Gíleaðítinn Barsillaí frá Rógelím til Davíðs.

28Þeir færðu Davíð og hernum, sem var með honum, dýnur og ábreiður, skálar og leirker og enn fremur hveiti, bygg, mjöl og ristað korn, ertur og linsubaunir,

29hunang og súrmjólk, fénað og ost. Þeir hugsuðu með sér: „Hermennirnir eru svangir, þyrstir og uppgefnir eftir dvölina í eyðimörkinni.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help