Orðskviðirnir 27 - Biblían (2007)

1Hælstu ekki um af morgundeginum

því að þú veist ekki hvað dagurinn ber í skauti sínu.

2Láttu aðra hrósa þér, ekki þinn eigin munn,

annarra varir, ekki þínar eigin.

3Steinar eru þungir og sandurinn sígur í

en gremja afglapans er þyngri en hvort tveggja.

4Heiftin er grimm og reiðin er svæsin

en hver fær staðist öfundina?

5Betri eru átölur í hreinskilni

en ást sem leynt er.

6Vel meint eru vinar sárin

en viðbjóðslegir fjandmanns kossar.

7Saddur maður treður hunang undir fótum

en hungruðum manni er remman sæt.

8Eins og fugl, floginn úr hreiðri,

svo er maður sem flúinn er af heimili sínu.

9Ilmolía og reykelsi gleðja hjartað

en indælli er vinur en ilmandi viður.

10Yfirgefðu ekki vin þinn né vin föður þíns

og gakktu ekki í hús bróður þíns á óheilladegi þínum.

Betri er granni í grennd en bróðir í fjarska.

11Öðlastu visku, sonur minn, og gleddu hjarta mitt

svo að ég geti svarað þeim orði sem smána mig.

12Vitur maður sér ógæfuna og felur sig

en einfeldningar halda áfram og gjalda þess.

13Taktu skikkjuna af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan,

taktu veð af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir framandi konu.

14Blessi maður náunga sinn snemma morguns með háreysti

skal það metið sem formæling.

15Sífelldur þakleki í rigningatíð og þrasgjörn kona

er hvað öðru líkt,

16sá er hana stöðvar stöðvar vindinn

og heldur á olíu í hægri hendi.

17Járn brýnir járn

og maður brýnir mann.

18Sá sem gætir fíkjutrés mun njóta ávaxtar þess

og sá sem annast húsbónda sinn hlýtur sæmd.

19Andlit horfir við andliti í vatni,

svo er hjarta eins manns gagnvart öðrum.

20Dánarheimar og undirdjúpin eru óseðjandi,

svo eru og augu mannsins óseðjandi.

21Deiglan reynir silfrið og bræðsluofninn gullið

en maðurinn er metinn eftir orðstír sínum.

22Þótt þú steytir heimskingjann í mortéli ásamt korni

mun heimska hans ekki skilja við hann.

23Gefðu nákvæmar gætur að sauðum þínum

og annast um hjarðir þínar

24því að hvorki vara eignir að eilífu

né kóróna frá kyni til kyns.

25Sé heyið hirt og háin tekin að spretta

og hafi jurtum fjallanna verið safnað

26átt þú lömb þér til klæðnaðar,

geithafra til þess að kaupa fyrir akur

27og nóga geitamjólk þér til fæðslu,

heimili þínu til matar og til viðurværis þernum þínum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help