Sálmarnir 95 - Biblían (2007)

1Komið, fögnum fyrir Drottni,

látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors.

2Göngum fyrir auglit hans með þakkargjörð,

syngjum gleðiljóð fyrir honum.

3Því að Drottinn er mikill Guð

og mikill konungur yfir öllum guðum.

4Í hendi hans eru jarðardjúpin

og fjallatindarnir heyra honum til,

5hans er hafið, hann hefur skapað það

og hendur hans mynduðu þurrlendið.

6Komið, föllum fram og tilbiðjum,

beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum.

7Því að hann er vor Guð

og vér erum gæslulýður hans,

hjörðin sem hann gætir.

Ó, að þér í dag vilduð heyra raust hans:

8Herðið ekki hjörtu yðar eins og við Meríba,

eins og daginn hjá Massa í eyðimörkinni

9þegar feður yðar freistuðu mín,

reyndu mig þó að þeir sæju verk mín.

10Í fjörutíu ár bauð mér við þessari kynslóð

og ég sagði: „Hjarta þessa fólks hefur villst af leið,

það ratar ekki vegu mína.“

11Ég sór því í reiði minni:

„Þeir skulu eigi ná til hvíldarstaðar míns.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help