Esrabók 4 - Biblían (2007)

Andstaða gegn musterisbyggingunni

1Þegar andstæðingar Júda og Benjamíns fréttu að þeir sem voru komnir heim úr útlegðinni væru að reisa Drottni, Guði Ísraels, musteri,

2fóru þeir til Serúbabels og ættarhöfðingjanna og sögðu við þá: „Við viljum byggja með ykkur því að við leitum til Guðs ykkar eins og þið. Við höfum fært honum fórnir frá tíma Asarhaddons Assýríukonungs sem flutti okkur hingað.“

3Serúbabel, Jesúa og aðrir ættarhöfðingjar Ísraels svöruðu: „Þið getið ekki verið með okkur um að reisa Guði okkar hús. Við ætlum einir að reisa Drottni, Guði Ísraels, hús eins og Kýrus Persakonungur hefur lagt fyrir okkur.“

4Þá drógu þeir sem bjuggu á landsbyggðinni kjarkinn úr Júdamönnum og hræddu þá frá því að byggja.

5Þeir mútuðu ráðgjöfum til að vinna gegn þeim og ónýta fyrirætlanir þeirra. Á þessu gekk alla stjórnartíð Kýrusar Persakonungs þar til Daríus varð konungur Persíu.

6Við upphaf stjórnartíðar Xerxesar rituðu þeir ákæru gegn íbúum Júda og Jerúsalem.

7Á stjórnartíma Artaxerxesar skrifuðu þeir í samráði við Mítredat, Tabeel og aðra félaga sína Artaxerxesi Persakonungi. Bréfið var þýtt á arameísku og skrifað með arameísku letri.

8Rehúm hershöfðingi og Simsaí ritari skrifuðu Artaxerxesi konungi eftirfarandi bréf gegn Jerúsalembúum.

9Sendendur: Rehúm hershöfðingi, Simsaí ritari og aðrir félagar þeirra, dómarar, sendimenn, eftirlitsmenn, persneskir embættismenn, menn frá Erek, Babýlon og Súsa, það er Elamítar,

10og aðrar þær þjóðir sem hinn mikli og víðfrægi Asenappar flutti burt og lét setjast að í borgum Samaríu og á öðrum landsvæðum handan við fljótið.

11Afrit bréfsins, sem þeir sendu Artaxerxesi, hljóðar svo:

„Til Artaxerxesar konungs frá þrælum þínum, fólkinu handan fljótsins.

12Hér með tilkynnist konungi að Gyðingarnir, sem komu frá þér hingað upp eftir, eru komnir til Jerúsalem. Þeir eru að endurreisa þessa uppreisnargjörnu og illu borg. Þeir eru að ljúka við að endurreisa múrana og gera við grunninn.

13Hér með er athygli konungs vakin á því að Gyðingar munu hvorki greiða skatta, gjöld né tolla verði þessi borg endurreist og múrar hennar fullgerðir. Konungur minn mun því skaðast.

14Þar sem við erum í þjónustu konungs sæmir ekki að við horfum aðgerðalausir á konung niðurlægðan. Þess vegna höfum við sent þetta bréf til að vekja athygli konungs á því

15að leita ætti í annálum forfeðra þinna. Í annálunum munt þú komast að raun um að þessi borg er uppreisnargjörn borg sem hefur skaðað konunga og skattlönd og í henni hafa verið gerðar uppreisnir frá alda öðli. Þess vegna var þessari borg eytt.

16Við bendum konungi á að verði borgin endurreist og að fullu gert við múra hennar, verða ítök þín handan fljóts úr sögunni.“

17Konungur sendi svohljóðandi svar: „Ég sendi kveðju Rehúm hershöfðingja, Simsaí ritara og öllum félögum þeirra sem búa í Samaríu og öðrum héruðum handan fljóts.

18Bréfið, sem þið senduð okkur, hefur verið lesið fyrir mig í þýðingu.

19Því næst var leitað í annálum samkvæmt skipun minni og þetta fannst: Þessi borg hefur frá fornu fari margsinnis risið gegn konungum og þar hafa orðið óeirðir og uppreisnir.

20Voldugir konungar hafa ríkt í Jerúsalem og stjórnað öllu landsvæðinu handan fljóts. Þeim voru greiddir skattar, gjöld og tollar.

21Gefið því skipun um að stöðva þessa menn. Þessi borg verður ekki endurreist fyrr en ég skipa svo fyrir.

22Gætið þess að láta þetta ekki sitja á hakanum, annars gæti konungdæmið orðið fyrir miklu tjóni.“

23Jafnskjótt og afrit af svarbréfi Artaxerxesar konungs hafði verið lesið fyrir Rehúm, Simsaí ritara og aðra félaga þeirra hröðuðu þeir sér til Jerúsalem, til Gyðinganna, og neyddu þá með hervaldi til að hætta framkvæmdum.

24Þá lagðist vinna við hús Guðs í Jerúsalem niður og lá niðri fram á annað stjórnarár Daríusar Persakonungs.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help