Síraksbók 45 - Biblían (2007)

Móse

1Af kyni hans lét Drottinn koma mann sem naut náðar

og var öllum mönnum þekkur,

elskaður bæði af Guði og mönnum.

Það var Móse, blessuð sé minning hans.

2Drottinn veitti honum dýrð hinna heilögu,

gæddi hann slíkum mætti að óvinir skelfdust.

3Hann lét máttarverk fylgja orðum hans

og gerði hann vegsamlegan í augsýn konunga.

Hann fékk honum boðorð að færa þjóð sinni

og sýndi honum blik af dýrð sinni.

4Drottinn helgaði hann vegna trúar hans og hógværðar,

útvaldi hann af öllu mannkyni.

5Drottinn lét hann heyra raust sína,

leiddi hann inn í dimmt ský,

gaf Móse boðorðin augliti til auglitis,

lögmál lífsins og þekkingarinnar,

svo að hann mætti kenna Jakobi sáttmálann

og Ísrael ákvæði hans.

Aron

6Drottinn hóf upp Aron, helgan mann, Móse líkan,

bróður hans af ætt Leví.

7Hann gerði eilífan sáttmála við hann,

veitti honum prestdóm þjóðarinnar

og heiðraði hann með skarti.

Sveipaði hann dýrlegum skrúða

8og færði hann í æðstu tákn tignar,

krýndi Aron auðkennum máttar:

buxum, kyrtli og hökli.

9Faldurinn var allur búinn granateplum

og fjöldi gullbjallna allt um kring

sem gullu við hvert fótmál hans

svo að undir tók í musterinu,

til áminningar allri þjóð hans.

10Það var helgur skrúði af gulli og bláum purpura

sem og rauðum, verk listamanns.

Á honum voru dómshlutirnir, hið heilaga hlutkesti.

Skrúðinn var ofinn úr skarlati af hagleiksmanni,

11settur gimsteinum er voru grafnir sem innsigli

og greyptir í gull af skartgripasmið.

Áletranirnar skyldu vera til áminningar,

jafnmargar og ættkvíslir Ísraels.

12Vefjarhötturinn var með ennishlað úr gulli,

með áletrun er staðfesti heilagleika prestsins,

tákn æðstu vegsemdar, verk sem máttur fylgdi,

allt yndi augum, hið fegursta verk.

13Fyrir tíma Arons var aldrei neitt til þessu líkt,

um eilífð mun ekki neinn honum óskyldur bera slíkt

heldur aðeins synir Arons

og afkomendur hans frá kyni til kyns.

14Fórnir hans skulu brenndar að fullu,

bornar fram tvisvar á dag um framtíð alla.

15Móse fyllti hendur Arons,

smurði hann með helgri olíu.

Eilífur sáttmáli var gerður við hann

og við niðja hans svo lengi sem himinninn stendur:

Að þjóna Drottni og vera prestar hans

og blessa lýð hans í nafni Drottins.

16Drottinn valdi hann af öllu mannkyni

til að bera fram fórn,

reykelsi og angan sem minningarfórn,

og til að færa friðþægingarfórn fyrir lýðinn.

17Drottinn fól honum boðorð sín

og úrskurðarvald í dómsmálum,

einnig að kenna Jakobi sáttmálstáknið

og upplýsa Ísrael um lögmál sitt.

18Menn af annarri ætt gerðu samsæri gegn Aroni,

fylltust öfund í eyðimörkinni,

menn af flokki Datans og Abírams

og söfnuður Kóra, allir ævareiðir.

19Drottinn sá það og var misboðið

og eyddi þeim í brennandi heift.

Hann lét undur verða á þeim

og eyddi þeim í bálandi eldi.

20En heiður Arons jók hann enn,

veitti honum réttindi sem gengu í arf.

Frumgróðafórnin varð hlutdeild hans

en framar öllu brauð honum til viðurværis.

21Enda mega prestarnir neyta af fórnum Drottins,

það var veitt Aroni og niðjum hans.

22En í landi lýðsins á hann engan arfshlut,

enga hlutdeild með þjóðinni í eign hennar,

enda var honum heitið: Drottinn er hlutskipti þitt og óðal.

Pínehas

23Pínehas Eleasarsson varð sá þriðji að tign

er hann sýndi heilaga ákefð í guðsótta

og var staðfastur þegar lýðurinn féll frá

sakir hugmóðs síns og hjartaprýði.

Hann friðþægði fyrir Ísrael.

24Því gerði Drottinn friðarsáttmála við hann,

að hann réði helgidóminum og lýð hans

svo að sjálfur hann og einnig niðjar hans

hefðu tign æðstaprestdómsins um aldur og ævi.

25Einnig var sáttmáli gerður við Davíð,

son Ísaí af ættkvísl Júda.

Konungdómur erfist aðeins frá syni til sonar

en arfur Arons gengur til allra niðja hans.

26Megi Drottinn veita hjörtum yðar speki

og láta yður stjórna lýð hans með réttlæti

svo að hagur hans fari hvorki forgörðum

né vegsemd hans hjá óbornum kynslóðum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help