Prédikarinn 9 - Biblían (2007)

Sömu örlög henda alla menn

1Öllu þessu veitti ég athygli og allt þetta reyndi ég að rannsaka:

Hinir réttlátu og vitru og verk þeirra eru í hendi Guðs.

Hvorki ást né hatur veit maðurinn fyrir,

allt bíður síns tíma,

2hið sama hendir alla,

sömu örlög mæta réttlátum og óguðlegum,

góðum og illum,

hreinum og óhreinum,

þeim sem fórnfærir og þeim sem ekki fórnfærir.

Hinum góða farnast eins og syndaranum,

og þeim er sver eins og þeim er óttast svardaga.

3Það er ókostur við allt sem við ber undir sólinni að sömu örlög mæta öllum og því fyllist hjarta mannanna illsku og heimska ríkir í hjörtum þeirra alla ævi þeirra og síðan liggur leiðin til hinna dauðu.

4Meðan maður er sameinaður þeim sem lifa, svo lengi er von,

því að lifandi hundur er betri en dautt ljón.

5Þeir sem lifa vita að þeir eiga að deyja en hinir dauðu vita ekki neitt og hljóta engin laun framar og minning þeirra gleymist.

6Bæði ást þeirra, hatur og öfund, það er fyrir löngu farið og þeir eiga ekki framar hlutdeild í neinu sem við ber undir sólinni.

7Farðu því og et brauð þitt með ánægju

og drekktu vín þitt með glöðu hjarta

því að Guð hefur lengi haft velþóknun á verkum þínum.

8Klæði þín séu ætíð hvít

og höfuð þitt skorti aldrei ilmsmyrslin.

9Njóttu lífsins með konunni, sem þú elskar,

alla daga þíns fánýta lífs, sem hann hefur gefið þér undir sólinni,

alla þína fánýtu daga

því að það er hlutdeild þín í lífinu

og það sem þú færð fyrir strit þitt

sem þú streitist við undir sólinni.

10Allt sem hönd þín megnar að gera

með kröftum þínum, gerðu það,

því að í dánarheimum, þangað sem þú ferð,

er hvorki starfsemi né hyggindi né þekking né viska.

Maðurinn háður tíma og tilviljun

11Enn sá ég undir sólinni

að hinir fótfráu ráða ekki hlaupinu,

né hetjurnar stríðinu,

né eiga spekingarnir brauðið víst,

né hinir hyggnu auðinn,

né hinir vitru vinsældir

því að tími og tilviljun hittir þá alla fyrir.

12Maðurinn þekkir ekki einu sinni sinn tíma.

Eins og fiskarnir festast í hinu háskalega neti

og eins og fuglarnir festast í snörunni,

á líkan hátt verða mennirnir fangnir á óheillatíð

þegar hún kemur skyndilega yfir þá.

Viska fátæks manns

13Þetta virtist mér einnig speki undir sólinni og fannst mér mikið um:

14Einu sinni var lítil borg og fáir menn í henni. Voldugur konungur fór gegn henni, settist um hana og reisti mikil hervirki við hana.

15En í borginni var fátækur maður en vitur og hann bjargaði borginni með visku sinni. En enginn minntist þessa fátæka manns.

16Þá hugsaði ég:

Viska er betri en afl

en viska fátæks manns er fyrirlitin

og orðum hans er enginn gaumur gefinn.

17Orð viturra manna, sem hlustað er á í næði,

eru betri en óp valdhafans meðal heimskingjanna.

18Viska er betri en hervopn

en einn syndari spillir mörgu góðu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help