Síraksbók 22 - Biblían (2007)

Leti og heimska

1Letinginn líkist saurugum steini,

allir fussa við smán hans.

2Letinginn líkist mykjuslettu,

sá sem snertir hana verður að hrista höndina.

3Óagaður sonur er föður blygðun,

ósiðuð dóttir verður honum til skaða.

4Hyggin dóttir auðgar eiginmann sinn

en óskammfeilin hryggir föður sinn.

5Skassið gerir föður og manni skömm

og hlýtur fyrirlitningu beggja.

6Fræðsla í ótíma er eins og gleðisöngur í sorgarhúsi

en ögun með hrísvendi á alltaf við.

7Vel uppalin börn hylja lágan uppruna foreldranna

8en hrokafull og óuppalin börn eru flekkur á tignustu ætt.

9Sá sem fræðir heimskingja er líkur þeim

sem límir brotið ker

eða rífur upp mann af fastasvefni.

10Að leiðbeina heimskingja

er eins og að segja svefndrukknum til,

að lokum segir hann: „Hvað varstu að segja?“

11Grát látinn mann því ljósið er honum horfið,

grát heimskan mann því að honum er vitið horfið.

Still harm þinn yfir dánum, hann er til hvíldar genginn,

en líf heimskingjans er dapurlegra en dauðinn.

12Látinn er syrgður í sjö daga,

guðlaus heimskingi veldur harmi meðan hann lifir.

13Eyddu eigi mörgum orðum á einfeldning,

legg ekki leið þína til óskynsamra.

Varastu hann svo að þú firrir þig vanda

og fáir eigi slettu er hann skekur sig.

Vík úr vegi hans svo að þú fáir frið

og fávísi hans valdi þér eigi lúa.

14Hvað er það sem íþyngir meira en blý?

Hvað er það annað en heimskingi?

15Sandur, salt og járnklumpur

er léttari byrði en fávís maður.

16Bjálkagrind, sem greypt er í steinvegg,

losnar eigi þótt jörðin bifist.

Eins er um hjarta, sem styðst við úthugsuð ráð,

það brestur ei kjark er á þarf að halda.

17Hjarta, sem styrkt er hygginda ráði,

er sem lágmynd á sléttum múrvegg.

18Smávölur, sem liggja hæst á hæð,

haldast ekki kyrrar er stormurinn blæs.

Eins er um hjarta, sem er deigt af heimsku ráði,

það fær ekkert staðist sem ógnar.

Um vináttu

19Særindi á auga koma út tárum,

það sem hjartað nístir afhjúpar veikleik þess.

20Sá fælir brott fugla sem varpar að þeim steini,

sá sem brigslar vini slítur vináttu.

21Þótt þú hafir brugðið sverði gegn góðvini,

örvæntu ekki því að enn má snúa við.

22Hafir þú mælt gegn góðvini,

vertu samt ósmeykur því að enn má ná sáttum.

En brigslyrði, hroka, trúnaðarbrot og níð,

slíkt mun sérhver vinur flýja.

23Ávinn traust náunga þíns meðan hann er fátækur

svo að þú fáir glaðst þegar hann auðgast.

Veit honum stoð er að honum sverfur

svo að þú fáir hlutdeild í happi hans.

Ekki skyldi ætíð fyrirlíta kröpp kjör

og ekki skyldi dá auðmann sé hann heimskur.

24Reykur og svæla fara á undan eldi,

eins eru illdeilur fyrr en blóð flýtur.

25Ekki skal ég blygðast mín fyrir að vernda vin

og aldrei fela mig fyrir honum.

26En hendi mig illt af völdum hans

munu allir sem um það heyra varast hann.

Bæn um hjálp til að syndga ekki

27Hver mun standa vörð um munn minn

og setja tryggt innsigli visku á varir mínar

svo að þær verði mér eigi til falls

og tunga mín steypi mér ekki í glötun?

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help