1Á fyrsta degi sjöunda mánaðarins skuluð þið halda helga samkomu og þá megið þið ekki vinna nein störf. Þann dag skulu hornin þeytt.
2Þið skuluð færa brennifórn, þekkan ilm handa Drottni, eitt naut, einn hrút og sjö veturgömul, lýtalaus lömb,
3ásamt fínu mjöli, blönduðu olíu, og í kornfórn með þeim þrjá tíundu hluta úr efu með hverju nauti, tvo tíundu með hverjum hrút
4og einn tíunda með hverju lambanna sjö,
5enn fremur einn geithafur í syndafórn til að friðþægja fyrir ykkur.
6Þetta er eldfórn, þekkur ilmur handa Drottni auk brennifórnar við nýtt tungl með kornfórn sem henni heyrir til og hinnar daglegu brennifórnar með kornfórn sem henni heyrir til og þeim dreypifórnum sem þeim heyra til, samkvæmt reglunum um þær.
7Á tíunda degi þessa sama sjöunda mánaðar skuluð þið halda helga samkomu. Þá skuluð þið aga líkama ykkar og ekkert starfa.
8Þið skuluð færa Drottni brennifórn, þekkan ilm, eitt naut, einn hrút og sjö veturgömul lömb. Fórnardýrin skulu vera lýtalaus.
9Þið skuluð færa fínt mjöl, blandað olíu, í þá kornfórn sem heyrir til, þrjá tíundu hluta úr efu með hverju nauti, tvo tíundu með hverjum hrút
10og einn tíunda með hverju hinna sjö lamba,
11enn fremur einn geithafur í syndafórn auk syndafórnar til friðþægingar og hinnar reglulegu brennifórnar ásamt þeirri kornfórn sem heyrir til.
12Á fimmtánda degi sjöunda mánaðar skuluð þið halda helga samkomu. Þann dag skuluð þið ekki vinna nein dagleg störf. Þið skuluð halda Drottni hátíð í sjö daga.
13Þið skuluð færa í brennifórn, í eldfórn til þægilegs ilms handa Drottni, þrettán naut, tvo hrúta og fjórtán veturgömul lömb. Fórnardýrin skulu vera lýtalaus.
14Í kornfórn, sem heyrir til, skal færa fínt mjöl, blandað olíu, þrjá tíundu úr efu með hverju nauti, tvo tíundu með hverjum hrút
15og einn tíunda með hverju hinna fjórtán lamba,
16enn fremur geithafur í syndafórn. Þetta skal færa í fórn auk hinnar reglulegu brennifórnar með þeirri kornfórn og dreypifórn sem heyrir til.
17Annan daginn skal færa í fórn tólf naut, tvo hrúta og fjórtán veturgömul lömb, lýtalaus dýr,
18einnig þær kornfórnir og dreypifórnir sem heyra til eftir fjölda nautanna, hrútanna og lambanna samkvæmt reglunum,
19enn fremur einn geithafur í syndafórn. Þetta skal færa í fórn auk hinnar reglulegu brennifórnar með þeirri kornfórn og dreypifórn sem heyrir henni til.
20Þriðja daginn skal færa í fórn ellefu naut, tvo hrúta og fjórtán veturgömul lömb, lýtalaus dýr,
21einnig þær kornfórnir og dreypifórnir sem heyra til eftir fjölda nautanna, hrútanna og lambanna samkvæmt reglunum,
22enn fremur einn geithafur í syndafórn. Þetta skal færa í fórn auk hinnar reglulegu brennifórnar með þeirri kornfórn og dreypifórn sem heyrir henni til.
23Fjórða daginn skal færa í fórn tíu naut, tvo hrúta og fjórtán veturgömul lömb, lýtalaus dýr,
24einnig þær kornfórnir og dreypifórnir sem heyra til eftir fjölda nautanna, hrútanna og lambanna samkvæmt reglunum,
25enn fremur einn geithafur í syndafórn. Þetta skal færa í fórn auk hinnar reglulegu brennifórnar með þeirri kornfórn og dreypifórn sem heyrir henni til.
26Fimmta daginn skal færa í fórn níu naut, tvo hrúta og fjórtán veturgömul lömb, lýtalaus dýr,
27einnig þær kornfórnir og dreypifórnir sem heyra til eftir fjölda nautanna, hrútanna og lambanna samkvæmt reglunum,
28enn fremur einn geithafur í syndafórn. Þetta skal færa í fórn auk hinnar reglulegu brennifórnar með þeirri kornfórn og dreypifórn sem heyrir henni til.
29Sjötta daginn skal færa í fórn átta naut, tvo hrúta og fjórtán veturgömul lömb, lýtalaus dýr,
30einnig þær kornfórnir og dreypifórnir sem heyra til eftir fjölda nautanna, hrútanna og lambanna samkvæmt reglunum,
31enn fremur einn geithafur í syndafórn. Þetta skal færa í fórn auk hinnar reglulegu brennifórnar með þeirri kornfórn og dreypifórn sem heyrir henni til.
32Sjöunda daginn skal færa í fórn sjö naut, tvo hrúta og fjórtán veturgömul lömb, lýtalaus dýr,
33einnig þær kornfórnir og dreypifórnir sem heyra til eftir fjölda nautanna, hrútanna og lambanna samkvæmt reglunum,
34enn fremur einn geithafur í syndafórn. Þetta skal færa í fórn auk hinnar reglulegu brennifórnar með þeirri kornfórn og dreypifórn sem heyrir henni til.
35Áttunda daginn skuluð þið halda hátíðarsamkomu. Þá skuluð þið ekki vinna dagleg störf.
36Þið skuluð færa í brennifórn, í eldfórn til þekks ilms handa Drottni, eitt naut, einn hrút og sjö veturgömul lömb, lýtalaus dýr,
37einnig þær kornfórnir og dreypifórnir sem heyra til eftir fjölda nautanna, hrútanna og lambanna samkvæmt reglunum,
38enn fremur einn geithafur í syndafórn. Þetta skal færa í fórn auk hinnar reglulegu brennifórnar með þeirri kornfórn og dreypifórn sem heyrir henni til.
39Þessu skuluð þið fórna Drottni á hátíðum ykkar auk heitgjafa ykkar og sjálfviljafórna, hvort sem það eru brennifórnir, kornfórnir, dreypifórnir eða heillafórnir.“
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.