1Ég verð að halda áfram að hrósa mér þótt það komi að litlu gagni. En ég mun nú snúa mér að vitrunum og opinberunum sem Drottinn hefur birt mér.
2Ég þekki kristinn mann. Fyrir fjórtán árum var hann hrifinn burt allt til þriðja himins. Hvort það var í líkamanum eða utan líkamans veit ég ekki. Guð veit það.
3-4 Og mér er kunnugt um að þessi maður var hrifinn upp í Paradís og heyrði ósegjanleg orð sem engum manni er leyft að mæla. Hvort það var í líkamanum eða utan líkamans veit ég ekki. Guð veit það.
5Af slíku vil ég hrósa mér en af sjálfum mér vil ég ekki hrósa mér nema þá af veikleika mínum.
6Þótt ég vildi hrósa mér væri ég ekki frávita því að ég væri að segja sannleika. En ég veigra mér við því til þess að enginn skuli ætla mig meiri en hann sér mig eða heyrir.
7Og til þess að ég skuli ekki ofmetnast af hinum miklu opinberunum er mér gefinn fleinn í holdið, Satans engill, sem slær mig til þess að ég skuli ekki líta of stórt á mig.
8Þrisvar hef ég beðið Drottin þess að láta hann fara frá mér.
9Og hann hefur svarað mér: „Náð mín nægir þér því að mátturinn fullkomnast í veikleika.“ Því vil ég helst hrósa mér af veikleika mínum til þess að kraftur Krists megi taka sér bústað í mér.
10Þess vegna uni ég mér vel í veikleika, í misþyrmingum, í nauðum, í ofsóknum, í þrengingum vegna Krists. Þegar ég er veikur þá er ég máttugur.
Umhyggja og áhyggja11Ég hef hagað mér eins og heimskingi. Þið hafið neytt mig til þess. Það voruð þið sem áttuð að mæla með mér. Því að í engu stóð ég hinum stórmiklu postulum að baki enda þótt ég sé ekki neitt.
12Ég gerði postulatákn á meðal ykkar af mikilli þrautseigju, tákn, undur og kraftaverk.
13Í hverju voruð þið sett lægra en hinir söfnuðirnir nema ef vera skyldi í því að ég sjálfur hef ekki verið ykkur til byrði? Fyrirgefið mér þennan órétt.
14Þetta er nú í þriðja sinn að ég er ferðbúinn að koma til ykkar og ætla ég ekki að verða ykkur til byrði. Ég sækist ekki eftir eigum ykkar heldur ykkur sjálfum því að ekki eiga börnin að sjá fyrir foreldrunum heldur foreldrarnir fyrir börnunum.
15Ég er fús til að verja því sem ég á, já, leggja sjálfan mig í sölurnar fyrir ykkur. Elskið þið mig síður ef ég elska ykkur heitar?
16En látum svo að ég hafi ekki verið ykkur til byrði en samt verið slægur og veitt ykkur með brögðum.
17Hef ég notað nokkurn þeirra sem ég hef sent til ykkar til þess að hafa eitthvað af ykkur?
18Ég bað Títus að fara og sendi bróðurinn með honum. Hefur þá Títus haft eitthvað af ykkur? Komum við ekki fram í einum og sama anda? Fetuðum við ekki í sömu fótsporin?
19Fyrir löngu eruð þið farin að halda að ég sé að verja mig gagnvart ykkur. Nei, ég beini orðum mínum til Guðs eins og þeir sem trúa á Krist. Allt er það ykkur til uppbyggingar, mín elskuðu.
20Þegar ég kem er ég hræddur um að mér muni þykja þið öðruvísi en ég óska og að ykkur muni þykja ég öðruvísi en þið óskið. Ég er hræddur um að þið kunnið að eiga í deilum og að öfund, reiði og eigingirni ríki meðal ykkar og menn móðgi og rægi hverjir aðra og séu hrokafullir og fullir ofstopa.
21Ég er hræddur um að Guð minn muni auðmýkja mig hjá ykkur þegar ég kem aftur og að ég muni hryggjast yfir mörgum þeirra sem áður hafa syndgað og ekki hafa snúið sér frá saurlífi, frillulífi og ólifnaði sem þeir hafa drýgt.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.