1Spámaðurinn Elía frá Tisbe í Gíleað sagði við Akab:
„Svo sannarlega sem Drottinn, Guð Ísraels, sem ég þjóna, lifir, þá skal hvorki falla dögg né regn þessi ár nema ég skipi svo fyrir.“
2Þá kom orð Drottins til hans:
3„Farðu héðan, haltu í austur. Feldu þig við lækinn Krít sem er austan við Jórdan.
4Þú skalt drekka úr læknum og ég hef skipað hröfnunum að fæða þig þar.“
5Elía hélt af stað og gerði það sem Drottinn hafði boðið, fór og settist að við lækinn Krít sem er austan við Jórdan.
6Hrafnarnir færðu honum brauð og kjöt á hverjum morgni og sömuleiðis brauð og kjöt að kvöldi og hann drakk úr læknum.
7Nokkru síðar þornaði lækurinn upp því að ekki hafði komið skúr á jörð.
Elía og ekkjan í Sarefta8Þá kom orð Drottins til Elía:
9„Búðu þig og farðu til Sarefta sem er rétt hjá Sídon og sestu þar að. Ég hef falið ekkju nokkurri, sem þar býr, að fæða þig.“
10Elía bjóst til ferðar og hélt af stað til Sarefta. Þegar hann kom að borgarhliðinu var þar ekkja nokkur að tína saman sprek. Hann kallaði til hennar og sagði: „Færðu mér vatnssopa í krús að drekka.“
11Þegar hún fór að sækja vatnið kallaði hann til hennar: „Færðu mér brauðbita um leið.“
12En hún svaraði: „Svo sannarlega sem Drottinn, Guð þinn lifir á ég ekkert brauð. Ég á aðeins mjölhnefa í krukku og örlitla olíu í krús. Ég er að tína saman nokkur sprek, síðan ætla ég heim að matreiða þetta handa mér og syni mínum. Þegar við höfum matast getum við dáið.“
13Elía sagði við hana: „Óttastu ekki. Farðu heim og gerðu það sem þú sagðir. En bakaðu fyrst lítið brauð og færðu mér, síðan skaltu matreiða handa þér og syni þínum.
14Því að svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Mjölkrukkan skal ekki tæmast, olíukrúsin ekki þorna fyrr en Drottinn lætur rigna á jörðina.“
15Ekkjan fór og gerði eins og Elía hafði sagt. Höfðu hún, Elía og sonur hennar, öll nóg að borða um langa hríð.
16Mjölkrukkan tæmdist ekki og ekki þraut olíu í krúsinni. Það var í samræmi við orð Drottins sem hann hafði flutt af munni Elía.
17Nokkru síðar bar svo við að sonur konunnar, sem átti húsið, veiktist. Honum þyngdi svo mjög að hann gaf að lokum upp andann.
18Þá sagði hún við Elía: „Hvað viltu mér, guðsmaður? Ertu aðeins kominn til að minna mig á synd mína og svipta son minn lífi?“
19Elía svaraði: „Fáðu mér son þinn.“ Síðan tók hann drenginn úr fangi hennar, bar hann upp á loft í herbergi hans og lagði hann á rúm sitt.
20Hann hrópaði til Drottins og sagði: „Drottinn, Guð minn, ætlar þú að senda það böl yfir ekkjuna, sem skotið hefur yfir mig skjólshúsi, að svipta son hennar lífi?“
21Því næst teygði hann sig þrisvar yfir drenginn og hrópaði til Drottins og sagði: „Drottinn, Guð minn, gefðu þessum dreng aftur líf.“
22Drottinn bænheyrði Elía, gaf drengnum aftur líf og hann lifnaði við.
23Elía tók þá drenginn upp og bar hann niður úr loftherberginu og gaf hann móður hans. Að svo búnu sagði Elía: „Sjá, sonur þinn lifir.“
24En konan sagði við Elía: „Nú veit ég að þú ert guðsmaður og að orð Drottins er sannarlega á vörum þínum.“
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.