1Síðan gekk Móse frá Móabssléttu og á Nebófjall, upp á Pisgatind gegnt Jeríkó, og Drottinn sýndi honum allt landið: Gíleað allt til Dan,
2allt Naftalí, Efraímsland og Manasse, allt land Júda vestur að Miðjarðarhafi,
3Negeb og Jórdanardalinn, dalinn við Jeríkó, pálmaborgina allt til Sóar.
4Síðan sagði Drottinn við hann: „Þetta er landið sem ég hét Abraham, Ísak og Jakobi er ég sagði: Niðjum þínum gef ég það. Ég hef leyft þér að sjá það með eigin augum en þú munt ekki komast þangað yfir um.“
5Móse, þjónn Drottins, andaðist þar í Móabslandi eins og Drottinn hafði sagt.
6Hann gróf hann í dalnum í Móabslandi gegnt Bet Peór. Enginn veit enn þann dag í dag hvar gröf hans er.
7Móse var hundrað og tuttugu ára þegar hann lést. Sjón hans hafði ekki daprast né heldur hafði þróttur hans þorrið.
8Ísraelsmenn syrgðu Móse á Móabssléttu í þrjátíu daga. Þá lauk sorgartímanum eftir Móse.
9Jósúa Núnsson var fullur vísdómsanda því að Móse hafði lagt hendur sínar yfir hann. Ísraelsmenn hlýddu honum og breyttu eftir því sem Drottinn hafði boðið Móse.
10Annar eins spámaður og Móse kom aldrei aftur fram í Ísrael. Drottinn umgekkst hann augliti til auglitis.
11Minnist táknanna og stórmerkjanna sem Drottinn sendi hann til að gera í Egyptalandi gegn faraó, hirðmönnum hans og öllu landi hans.
12Hafið í huga allt sem hann vann með sinni sterku hendi, öll hin miklu og ógnvekjandi verk sem Móse vann í augsýn alls Ísraels.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.