Sálmarnir 60 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu,

2þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópótamíu og Sýrlendinga frá Sóba og Jóab sneri við og vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tólf þúsund manns.

3Guð, þú hefur útskúfað oss og tvístrað,

þú reiddist oss − reis oss við að nýju.

4Þú lést jörðina skjálfa og rifna,

lagfærðu sprungurnar því að hún riðar.

5Þú lést lýð þinn kenna á hörðu,

gafst oss vín að drekka svo að vér reikuðum.

6Þú hefur gefið þeim gunnfána er óttast þig

svo að þeir bjargist undan örvahríð. (Sela)

7Hjálpa þú með máttarhendi þinni og bænheyr oss

til þess að þeir sem þú elskar megi frelsast.

8Guð hefur sagt í helgidómi sínum:

„Ég vil fagna sigri, ég vil skipta Síkem,

mæla Súkkótdalinn.

9Ég á Gíleað og ég á Manasse,

Efraím er hjálmurinn á höfði mér,

Júda veldissproti minn,

10Móab er handlaug mín,

ég fleygi skóm mínum á Edóm,

hrósa sigri yfir Filisteu.“

11Hver leiðir mig til virkisborgarinnar,

hver fylgir mér til Edóms?

12Hefur þú útskúfað oss, Guð,

og ferð eigi út með hersveitum vorum?

13Veit oss lið gegn fjandmönnunum

því að hjálp manna er einskis nýt.

14Með Guðs hjálp vinnum vér afrek

og hann mun troða óvini vora fótum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help