Prédikarinn 8 - Biblían (2007)

Orð konungs er máttugt

1Hver er sem spekingurinn

og hver skilur merkingu hlutanna?

Speki mannsins hýrgar andlit hans

og dregur úr hörkunni í svipnum.

2Ég segi: Varðveittu boð konungsins einmitt vegna eiðsins við Guð.

3Vertu ekki fljótur til að ganga burt frá honum,

gefðu þig ekki að illu málefni.

Því að hann gerir allt sem hann vill

4af því að konungsorð er máttugt

og hver segir við hann: Hvað gerir þú?

Ráð Guðs er mönnum hulið

5Sá sem varðveitir skipunina mun ekki verða fyrir neinu illu

og hjarta viturs manns þekkir tíma og dóm.

6Sérhvert verk á sinn tíma og dóm,

og böl mannsins hvílir þungt á honum.

7Hann veit ekki hvað verða muni

því að hver segir honum hvernig muni fara?

8Enginn maður ræður yfir vindinum svo að hann geti stöðvað hann

og enginn maður hefur vald yfir dauðadeginum,

enginn fær sig lausan úr bardaganum

og óhæfan bjargar ekki þeim er hana fremur.

9Allt þetta hef ég séð af því að ég veitti athygli öllu því sem gerist undir sólinni þegar einn maður drottnar yfir öðrum honum til ógæfu.

10Þá hef ég séð rangláta menn jarðaða en þeir sem höfðu breytt rétt urðu að fara burt frá hinum heilaga stað og þeir gleymdust í borginni. Einnig það er hégómi.

11Dómi yfir illskuverkum er ekki fullnægt þegar í stað og því svellur mönnum móður til þess að gera það sem illt er.

12Syndarinn gerir það sem illt er hundrað sinnum og verður samt gamall þótt ég viti hins vegar að réttlátum mönnum, sem óttast Guð, vegnar vel.

13Hinum rangláta mun ekki vel vegna og hann verður ekki langlífur fremur en skugginn af því að hann óttast ekki Guð.

14Það er hégómi sem gerist á jörðinni, að til eru réttlátir menn sem verða fyrir því sem ranglátir eiga skilið og til eru ranglátir menn sem verða fyrir því sem réttlátir eiga skilið. Ég sagði: Einnig það er hégómi.

15Og ég lofaði gleðina því að ekkert betra er til fyrir manninn undir sólinni en að eta og drekka og vera glaður. Og það fylgir honum í striti hans um ævidagana sem Guð hefur gefið honum undir sólinni.

16Þegar ég kappkostaði að kynna mér speki og sjá þau verk sem unnin eru á jörðinni, því að hvorki dag né nótt kemur manni blundur á auga,

17þá sá ég að maðurinn getur ekki skilið til fulls allt verk Guðs, það verk sem gerist undir sólinni, því að hversu mjög sem maðurinn gerir sér far um að leita fær hann þó ekki skilið það til fulls, og enda þótt spekingurinn segist þekkja það fær hann ekki skilið það til fulls heldur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help