Opinberunarbókin 7 - Biblían (2007)

Þjónar Guðs merktir innsigli

1Eftir þetta sá ég fjóra engla er stóðu á fjórum skautum jarðarinnar. Þeir héldu fjórum vindum jarðarinnar svo að vindur næði hvorki að blása yfir jörðina né hafið né yfir nokkurt tré.

2Og ég sá annan engil stíga upp í austri. Hann hélt á innsigli lifanda Guðs og hrópaði hárri röddu til englanna fjögurra, sem fengið höfðu vald til að granda jörðunni og hafinu,

3og sagði:

„Vinnið ekki jörðunni mein og ekki heldur hafinu né trjánum þar til er vér höfum sett innsigli á enni þjóna Guðs vors.“

4Og ég heyrði hve margir menn höfðu verið merktir innsigli Guðs. Hundrað fjörutíu og fjórar þúsundir voru merktar innsigli af öllum ættkvíslum Ísraelsmanna.

5Af Júda ættkvísl voru tólf þúsund merkt innsigli, af Rúbens ættkvísl tólf þúsund, af Gaðs ættkvísl tólf þúsund,

6af Assers ættkvísl tólf þúsund, af Naftalí ættkvísl tólf þúsund, af Manasse ættkvísl tólf þúsund,

7af Símeons ættkvísl tólf þúsund, af Leví ættkvísl tólf þúsund, af Íssakars ættkvísl tólf þúsund,

8af Sebúlons ættkvísl tólf þúsund, af Jósefs ættkvísl tólf þúsund, af Benjamíns ættkvísl tólf þúsund menn merktir innsigli.

Hinn mikli múgur

9Eftir þetta sá ég, og sjá: Mikill múgur, sem enginn gat tölu á komið, af öllum þjóðum og kynkvíslum, lýðum og tungum, stóð frammi fyrir hásætinu og frammi fyrir lambinu, skrýddur hvítum skikkjum og hafði pálmagreinar í höndum.

10Og hann hrópaði hárri röddu:

Hjálpræðið kemur frá Guði vorum,

sem í hásætinu situr, og lambinu.

11Allir englarnir stóðu kringum hásætið og öldungana og verurnar fjórar. Og þeir féllu fram fyrir hásætinu á ásjónur sínar, tilbáðu Guð

12og sögðu:

Amen! Lofgjörðin og dýrðin,

viskan og þakkargjörðin,

heiðurinn og mátturinn og krafturinn

sé Guði vorum um aldir alda. Amen.

13Einn af öldungunum tók þá til máls og sagði við mig: „Hverjir eru þessir menn sem skrýddir eru hvítum skikkjum og hvaðan eru þeir komnir?“

14Og ég sagði við hann: „Herra minn, þú veist það.“

Hann sagði við mig: „Þetta eru þeir sem komnir eru úr þrengingunni miklu og hafa hvítþvegið skikkjur sínar í blóði lambsins.

15Þess vegna eru þeir frammi fyrir hásæti Guðs og þjóna honum dag og nótt í musteri hans og sá sem í hásætinu situr mun búa hjá þeim.

16Þá mun hvorki hungra né þyrsta framar og eigi mun heldur sól brenna þá né nokkur breyskja vinna þeim mein.

17Því að lambið, sem er fyrir miðju hásætinu, mun vera hirðir þeirra og leiða þá til vatnslinda lífsins. Og Guð mun þerra hvert tár af augum þeirra.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help