Fyrri kroníkubók 20 - Biblían (2007)

Fall Rabba

1Um áramót, þegar konunga er siður að halda í hernað, fór Jóab með allan herinn í leiðangur. Hann eyddi land Ammóníta, settist um Rabba, en Davíð hélt kyrru fyrir í Jerúsalem. Jóab vann Rabba og reif hana niður.

2Því næst tók Davíð kórónu Ammónítakonungs af höfði hans og reyndist hún vera ein talenta gulls að þyngd, skreytt gimsteini, og var hún sett á höfuð Davíðs. Hann tók mjög mikið herfang úr borginni

3og flutti borgarbúa burt og lét þá vinna með steinsögum, járnhökum og járnöxum. Þannig fór hann með allar aðrar borgir Ammóníta. Því næst sneri Davíð ásamt öllum hernum heim til Jerúsalem.

Fall Refaíta

4Eftir þetta kom til ófriðar við Filistea við Geser. Þá drap Sibbekaí frá Húsa Sippaí, sem var af ætt Refaíta, og voru þeir ofurliði bornir.

5Enn á ný kom til bardaga við Filistea. Elkana Jaírsson drap þá Lahmí, bróður Golíats frá Gat, en spjótskaft hans var eins og vefjarrifur í vefstól.

6Þá varð enn bardagi við Gat. Þar var risavaxinn maður sem hafði tólf fingur og tólf tær. Einnig hann var af ætt Refa.

7Er hann hæddist að Ísrael drap Jónatan hann en hann var sonur Símea, bróður Davíðs.

8Þessir menn voru afkomendur Refa frá Gat. Þeir féllu allir fyrir hendi Davíðs og manna hans.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help