1Allur söfnuður Ísraelsmanna lagði nú af stað frá Síneyðimörkinni og hélt áfram í áföngum eftir fyrirmælum Drottins. Þeir slógu upp búðum í Refídím. Af því að ekkert drykkjarvatn var þar að finna
2ásakaði fólkið Móse og sagði: „Gefðu okkur vatn að drekka.“ Móse sagði við það: „Hvers vegna ásakið þið mig? Hvers vegna reynið þið Drottin?“
3Fólkið þyrsti í vatn og möglaði gegn Móse og sagði: „Hvers vegna leiddir þú okkur frá Egyptalandi? Var það til að láta okkur, börn okkar og fénað deyja úr þorsta?“
4Þá hrópaði Móse á hjálp til Drottins og sagði: „Hvað get ég gert við þetta fólk? Það er rétt að því komið að grýta mig.“
5Drottinn sagði við Móse: „Gakktu fram fyrir fólkið og taktu með þér nokkra af öldungum Ísraels. Taktu í hönd þér stafinn sem þú slóst með á fljótið og haltu af stað.
6Þar mun ég standa frammi fyrir þér, á klettinum við Hóreb. Þú skalt slá á klettinn og mun þá vatn spretta úr honum og fólkið fær að drekka.“ Þetta gerði Móse frammi fyrir augum öldunga Ísraels.
7Hann nefndi staðinn Massa og Meríba vegna þess að Ísraelsmenn höfðu komið með ásakanir og reynt Drottin með því að spyrja: „Er Drottinn mitt á meðal okkar eða ekki?“
Orrusta við Amalekíta8Amalek kom og réðst á Ísrael í Refídím.
9Þá sagði Móse við Jósúa: „Veldu menn fyrir okkur og farðu til að berjast við Amalekíta. Á morgun mun ég standa efst á hæðinni og hafa staf Guðs í hendi mér.“
10Jósúa gerði eins og Móse hafði falið honum og hélt til orrustu við Amalekíta en Móse, Aron og Húr höfðu farið upp á háhæðina.
11Á meðan Móse hélt hendi sinni uppi veitti Ísraelsmönnum betur en þegar hann lét hönd sína síga höfðu Amalekítar betur.
12Þegar hendur Móse þreyttust tóku þeir stein og settu undir hann. Móse settist á hann en Aron og Húr studdu hendur hans, hvor sínum megin. Hendur hans héldust því stöðugar allt til sólarlags.
13Þannig sigraði Jósúa Amalekíta og her þeirra með sverðseggjum.
14Drottinn sagði við Móse: „Skráðu þetta í bók til minningar og láttu Jósúa leggja það á minnið því að ég ætla að afmá minninguna um Amalekíta og her þeirra af jörðinni.
15Móse reisti þar altari og nefndi staðinn „Drottinn er hermerki mitt“.
16Hann sagði: „Hendi var lyft gegn hásæti Drottins, milli Drottins og Amalekíta er stríð, kynslóð eftir kynslóð.“
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.