Fyrra Korintubréf 9 - Biblían (2007)

Allt vegna fagnaðarerindisins

1Er ég ekki frjáls? Er ég ekki postuli? Hef ég ekki séð Jesú, Drottin vorn? Eruð þið ekki verk mitt sem ég hef unnið með hjálp Drottins?

2Þótt ég væri ekki postuli fyrir aðra, þá er ég það fyrir ykkur. Þið eruð staðfesting Drottins á postuladómi mínum.

3Þetta er vörn mín gagnvart þeim sem vilja dæma um mig.

4Hef ég ekki rétt til að eta og drekka?

5Hef ég ekki rétt til að ferðast um með kristna eiginkonu alveg eins og hinir postularnir og bræður Drottins og Kefas?

6Eða erum við Barnabas þeir einu sem eru ekki undanþegnir því að þurfa að vinna fyrir uppihaldi?

7Hver fer nokkurn tíma í stríð á eigin kostnað? Hver plantar víngarð og neytir ekki ávaxtar hans? Hver gætir hjarðar og neytir ekki af mjólk hjarðarinnar?

8Segi ég þetta af mannlegri reynslu eða segir ekki einnig lögmálið það?

9Ritað er í lögmáli Móse: „Þú skalt ekki múlbinda uxann er hann þreskir.“ Er Guð hér að tala um uxana?

10Eða segir hann það ekki öllu heldur okkar vegna? Jú, okkar vegna stendur skrifað að sá sem plægir og sá sem þreskir eigi að gera það með von um hlutdeild í uppskerunni.

11Ef ég nú hef sáð hjá ykkur því sem andlegt er, er það þá of mikið að ég uppskeri hjá ykkur það sem líkamlegt er?

12Ef aðrir hafa þennan rétt hjá ykkur, hef ég hann þá ekki miklu fremur?

En ég hef ekki hagnýtt mér þennan rétt heldur sætti mig við allt til þess að tálma ekki fagnaðarerindinu um Krist.

13Vitið þið ekki að þeir sem vinna við helgidóminn lifa af því sem kemur úr helgidóminum og þeir sem starfa við altarið fá hlut af því sem fórnað er á altarinu?

14Þannig hefur og Drottinn fyrirskipað að þeir sem boða fagnaðarerindið skuli lifa af fagnaðarerindinu.

15En ég hef ekki hagnýtt mér neitt af þessu og ég skrifa þetta ekki heldur til þess að svo verði við mig gert. Mér væri betra að deyja. Enginn skal ónýta það sem ég tel mér til gildis.

16Þótt ég sé að boða fagnaðarerindið, þá gefur það mér enga ástæðu til að miklast af því. Ég er knúinn til þess. Vei mér ef ég boða það ekki.

17Geri ég þetta af frjálsum vilja ber mér að fá laun. En finni ég mig til þess knúinn hefur Guð falið mér ráðsmennsku.

18Hver eru þá laun mín? Þau að ég boða fagnaðarerindið án endurgjalds og hagnýti mér ekki það sem ég á rétt á.

19Þótt ég sé öllum óháður hef ég gert sjálfan mig að þræli allra til þess að ávinna sem flesta.

20Ég hef verið Gyðingum sem Gyðingur til þess að ávinna Gyðinga. Þótt ég lifi ekki eftir lögmáli Móse breyti ég eftir því til þess að ávinna þá sem fara eftir því.

21Til þess að ávinna þá sem þekkja ekki lögmál Móse breyti ég ekki eftir því enda þótt ég sé ekki laus við lögmál Guðs heldur bundinn lögmáli Krists.

22Hinum óstyrku hef ég verið óstyrkur til þess að ávinna hina óstyrku. Ég hef verið öllum allt til þess að ég geti að minnsta kosti frelsað nokkra.

23Allt geri ég vegna fagnaðarerindisins til þess að ég fái hlutdeild í blessun þess.

24Vitið þið ekki að þeir sem keppa á íþróttavelli hlaupa að sönnu allir en einn fær sigurlaunin? Hlaupið þannig að þið fáið sigurlaun.

25Sérhver sem tekur þátt í kappleikjum leggur hart að sér. Þeir sem keppa gera það til þess að hljóta forgengilegan sigursveig en við óforgengilegan.

26Þess vegna hleyp ég ekki stefnulaust. Ég berst eins og hnefaleikamaður sem engin vindhögg slær.

27Ég aga líkama minn og geri hann að þræli mínum til þess að ég, sem hef prédikað fyrir öðrum, skuli ekki reynast óhæfur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help