Orðskviðirnir 31 - Biblían (2007)

Orð móður Lemúels

1Orð Lemúels konungs í Massa

sem móðir hans kenndi honum:

2Hvað á ég að segja þér, sonur minn,

sonur kviðar míns,

sonur áheita minna?

3Gefðu konum ekki kraft þinn,

þrek þitt þeim sem táldraga konunga.

4Ekki sæmir það konungum, Lemúel,

ekki sæmir það konungum að drekka vín

eða höfðingjum áfengur drykkur.

5Þeir kynnu að drekka og gleyma lögunum

og ganga á rétt hinna fátæku.

6Gefið áfengan drykk hinum lánlausa

og vín þeim sem er beiskur í lund.

7Drekki þeir og gleymi fátækt sinni

og minnist ekki framar mæðu sinnar.

8Ljúktu upp munni þínum fyrir hinn mállausa,

fyrir málstað allra lánleysingja.

9Ljúktu upp munni þínum, dæmdu af réttvísi,

réttu hlut hinna voluðu og snauðu.

Lof um dugmikla konu

10Dugmikla konu, hver hlýtur hana?

Hún er miklu dýrmætari en perlur.

11Hjarta manns hennar treystir henni

og ekki er lát á hagsæld hans.

12Hún gerir honum gott og ekkert illt

alla ævidaga sína.

13Hún sér um ull og hör

og vinnur fúslega með höndum sínum.

14Hún er eins og kaupförin,

sækir björgina langt að.

15Hún fer á fætur fyrir dögun,

skammtar heimilisfólki sínu

og segir þernum sínum fyrir verkum.

16Fái hún augastað á akri kaupir hún hann

og af eigin rammleik býr hún sér víngarð.

17Hún gyrðir lendar sínar krafti

og tekur sterklega til armleggjunum.

18Hún finnur að starf hennar er ábatasamt,

á lampa hennar slokknar ekki um nætur.

19Hún réttir út hendurnar eftir rokknum

og fingur hennar grípa snælduna.

20Hún er örlát við bágstadda

og réttir fram hendurnar móti snauðum.

21Ekki óttast hún um heimilisfólk sitt þótt snjói

því að allt heimilisfólk hennar er klætt skarlati.

22Hún býr sér til ábreiður,

klæðnaður hennar er úr baðmull og purpura.

23Maður hennar er mikils metinn í borgarhliðunum

þegar hann situr með öldungum landsins.

24Hún býr til línkyrtla og selur þá

og kaupmanninum fær hún belti.

25Kraftur og tign er klæðnaður hennar

og hún fagnar komandi degi.

26Mál hennar er þrungið speki

og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar.

27Hún vakir yfir því sem fram fer á heimili hennar

og etur ekki letinnar brauð.

28Börn hennar segja hana sæla,

maður hennar hrósar henni:

29„Margar konur hafa sýnt dugnað

en þú tekur þeim öllum fram.“

30Yndisþokkinn er svikull og fegurðin hverful

en sú kona sem óttast Drottin á hrós skilið.

31Hún njóti ávaxta handa sinna

og verk hennar skulu vegsama hana í borgarhliðunum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help