Jeremía 13 - Biblían (2007)

Línbeltið

1Drottinn sagði við mig: Farðu og kauptu þér línbelti, hnýttu það um lendar þér en láttu það ekki koma í vatn.

2Ég keypti þá beltið samkvæmt boði Drottins og hnýtti það um lendar mér.

3Þá kom orð Drottins aftur til mín:

4Taktu beltið sem þú keyptir og þú hefur um lendar þér, haltu af stað austur að Efrat. Þar skaltu fela það í klettaskoru.

5Ég fór þá og faldi það við Efrat eins og Drottinn hafði skipað mér.

6Löngu síðar bar svo við að Drottinn sagði við mig: Haltu af stað austur að Efrat og sæktu beltið sem ég skipaði þér að fela þar.

7Ég fór þá austur að Efrat, leitaði að beltinu og tók það þar sem ég hafði falið það. En þá kom í ljós að beltið var ónothæft með öllu.

8Þá kom orð Drottins til mín:

9Svo segir Drottinn: Þannig mun ég eyða stolti Júda og stolti Jerúsalem þó að mikið sé.

10Þessi illa þjóð neitar að hlýða á boð mín. Þeir fylgja þrjósku eigin hjarta og elta framandi guði, þjóna þeim og dýrka. Því fer fyrir þeim eins og þessu belti sem er með öllu ónothæft.

11Eins og beltið lagar sig að lendum mannsins hafði ég lagað alla Ísraelsmenn og Júdamenn að mér, segir Drottinn. Þeir áttu að vera minn lýður, mér til frægðar, lofstírs og prýði en þeir hlýddu ekki.

Vínkerin

12Segðu við þá: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: „Hvert vínker verður fyllt víni.“ Ef þeir þá svara þér: „Vitum vér ekki sjálfir að öll vínker eru fyllt víni?“

13skaltu segja við þá: Svo segir Drottinn: Ég fylli alla íbúa þessa lands svo að þeir verði drukknir, konungana, sem sitja í hásæti Davíðs, prestana, spámennina og alla Jerúsalembúa.

14Ég mun mola þá sundur hvern með öðrum, feður með sonum, segir Drottinn. Hvorki samúð, vorkunn né miskunn getur varnað því að ég eyði þeim.

Afleiðing hrokans

15Hlustið, takið eftir, hreykið yður ekki

því að Drottinn talar.

16Gefið Drottni, Guði yðar, dýrðina

áður en dimmir,

áður en yður skrikar fótur

á rökkvuðum fjöllum.

Þér væntið ljóss,

hann breytir því í myrkur,

gerir það að niðdimmu.

17En ef þér viljið ekki hlusta

hlýt ég að gráta í leynum yfir hrokanum.

Tárin streyma af hvörmum mínum

af því að hjörð Drottins verður flutt í útlegð.

18Segðu við konunginn og konungsmóðurina:

Setjist í neðstu sætin

því að kórónan glæsta

er fallin af höfðum ykkar.

19Borgirnar í Suðurlandinu eru lokaðar

og enginn opnar þær.

Allir Júdamenn verða fluttir í útlegð,

allir með tölu.

20Hef upp augu þín,

sjáðu þá sem koma úr norðri.

Hvar er hjörðin sem þér var falin,

hinir vænu sauðir þínir?

21Hvað ætlarðu að segja

þegar vinir þínir, sem þú hefur laðað að þér,

verða settir til að ríkja yfir þér?

Færðu þá ekki hríðir eins og kona í barnsnauð?

22Ef þú hugsar með sjálfri þér:

Hvers vegna hefur allt þetta dunið á mér?

skaltu vita að vegna mikillar syndar þinnar

hefur pilsfaldi þínum verið lyft

og þér nauðgað.

23Getur Núbíumaður breytt hörundslit sínum

eða pardusdýr blettum sínum?

Þá getið þér líka gert gott

sem hafið vanist að gera illt.

24Ég mun því dreifa yður eins og stráum

sem fjúka undan eyðimerkurvindinum.

25Það er hlutskipti þitt,

launin sem ég hef skammtað þér, segir Drottinn,

af því að þú gleymdir mér

en treystir lygum.

26Nú lyfti ég einnig pilsfaldi þínum yfir höfuð þér

svo að blygðun þín verði sýnileg.

27hjúskaparbrot þín, lostavein

og blygðunarlaus hórdómur.

Ég hef séð andstyggilega hegðun þína

á hæðunum og á sléttunum.

Vei þér, Jerúsalem, ef þú hreinsar þig ekki.

Hve lengi enn mun þetta vara?

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help