Júdítarbók 2 - Biblían (2007)

Styrjöld við þjóðirnar í vestri

1Á átjánda stjórnarári Nebúkadnesars Assýríukonungs, á tuttugasta og öðrum degi fyrsta mánaðar, kom til umræðu í höll Nebúkadnesars að láta hefndina, sem hann hafði hótað öllum löndunum, koma yfir þau eins og hann hafði sagt.

2Hann kallaði alla embættismenn sína og ráðsherra saman, lagði fyrir þá leynilega ráðagerð og kynnti þeim alla þá skelfingu sem hann hafði í ráði að láta koma yfir löndin.

3Voru þeir allir sama sinnis og hann, að eyða skyldi öllum sem óhlýðnast höfðu boðum hans.

4Þegar Nebúkadnesar Assýríukonungur hafði greint frá áætlun sinni boðaði hann Hólofernes, yfirhershöfðingja herja sinna, á sinn fund. Gekk hann næst konungi að völdum. Nebúkadnesar sagði við hann:

5„Svo mælir stórkonungurinn, herra gjörvallrar jarðar: Þú skalt halda héðan og taka með þér menn sem treysta á mátt sinn, eitt hundrað og tuttugu þúsund fótgönguliða og tólf þúsund hesta og riddara.

6Þú skalt halda í herför gegn öllum löndunum í vestri því að þau óhlýðnuðust boðum mínum.

7Þú skalt kunngjöra þeim að þau skuli hafa til reiðu mold og vatn því að ég muni ráðast á þau af heift. Fætur herja minna munu þekja yfirborð jarðar og ég mun afhenda herjum mínum löndin til rána.

8Fallnir munu fylla gil og árfarvegi, líkin stífla læki og ár svo að þær munu flæða yfir bakka sína.

9Ég mun flytja hertekna til ystu endimarka jarðar.

10Þú skalt fara fyrir mér og taka allar byggðir hinna óhlýðnu herskildi. Gangi íbúar þeirra þér á vald skalt þú gæta þeirra fyrir mig þar til ég kem til að gera upp sakir.

11En þeim sem sýna þér mótþróa skalt þú ekki sýna neina vægð heldur ofurselja þá dauða og ránum um allt land þitt.

12Ég hef svarið við líf mitt og veldi konungdóms míns að gera þetta og það mun ég sjálfur gera.

13Ekki skalt þú heldur brjóta gegn einu einasta boði húsbónda þíns. Þú skalt gera allt nákvæmlega eins og ég hef lagt fyrir þig og þú skalt gera það án tafar.“

Herför Hólofernesar

14Hólofernes hélt af stað frá húsbónda sínum og kvaddi saman alla yfirhershöfðingja, hershöfðingja og foringja Assýríuhers.

15Hann valdi úrvalslið eins og konungurinn hafði boðið honum, eitt hundrað og tuttugu þúsund fótgönguliða og tólf þúsund bogfima riddara.

16Hann skipaði þeim í bardagafylkingar eins og venja var.

17Enn fremur hafði hann gríðarlegan fjölda burðardýra, úlfalda, asna og múldýr og auk þess fleiri sauðkindur, naut og geitur en tölu yrði á komið hernum til viðurværis.

18Hafði hann yfrið nægar vistir handa hverjum hermanni auk gnóttar gulls og silfurs úr fjárhirslu konungs.

19Síðan lagði Hólofernes og allur hans her upp í herförina til að ryðja Nebúkadnesari konungi braut og þekja allt yfirborð jarðar í vestri með stríðsvögnum, riddurum og úrvalsfótgönguliði.

20Hernum fylgdi einnig sundurleitur skari, slíkur aragrúi að engri tölu varð á komið fremur en engisprettusveim eða sandkorn jarðar.

21Þeir héldu þrjár dagleiðir frá Níníve yfir á Bekteletsléttu og slógu upp herbúðum handan Bektelet í nánd fjallsins norður af Efri-Kilíkíu.

22Þaðan hélt Hólofernes upp í fjöllin með allan her sinn, fótgöngulið, riddara og stríðsvagna.

23Eyddi hann Pút og Lúd og fór ránshendi um byggðir Rassismanna og Ísmaelíta í jaðri eyðimerkurinnar sunnan við land Kelea.

24Hann hélt með fram Efrat og gegnum Mesópótamíu og eyddi öllum víggirtum borgum með fram Abronánni og allt til sjávar.

25Hann náði Kilíkíuhéraði á sitt vald og gekk á milli bols og höfuðs á öllum sem veittu honum mótspyrnu. Síðan hélt hann til Jafetsbyggða sem eru í suðri gegnt Arabíu.

26Hann umkringdi alla Mídíaníta, brenndi tjöld þeirra og rændi fjárbyrgi þeirra.

27Um hveitiskurðartímann hélt hann ofan á Damaskussléttuna, brenndi þar alla akra, slátraði sauðaog nautahjörðum, rændi borgir og gereyddi haglendið umhverfis þær og hjó niður alla unga menn með sverði.

28Allir þeir sem bjuggu á strandlengjunni fylltust ótta og skelfingu við hann. Íbúar Sídonar og Týrusar, Súr og Ókína og þeir sem bjuggu í Jabne, Asdód og Askelon urðu alteknir ótta.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help