Efesusbréfið 1 - Biblían (2007)

Kveðja

1Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú, heilsar hinum heilögu í Efesus sem trúa á Krist Jesú.

2Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.

Lofgjörð

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem í Kristi hefur blessað oss með allri andlegri blessun himinsins.

4Áður en grunnur heimsins var lagður útvaldi hann oss í Kristi að hann hefði oss fyrir augum sér heilög og lýtalaus í kærleika.

5Fyrir fram ákvað hann að gera oss að börnum sínum í Jesú Kristi.

Sá var náðarvilji hans.

6Hann vildi að vér yrðum til vegsemdar dýrð hans og náð

sem hann hefur gefið oss í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð, eigum vér endurlausnina

og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans sem hann gaf oss ríkulega

með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann hefur birt oss leyndardóm vilja síns,

þann ásetning um Krist

10sem hann í náð sinni ætlaði sér að framkvæma í fyllingu tímanna:

Að safna öllu sem til er á himni og jörðu undir eitt höfuð í Kristi.

11Í honum höfum vér þá líka öðlast arfleifðina

eins og oss var fyrirhugað samkvæmt fyrirætlun hans

er framkvæmir allt eftir ályktun vilja síns

12til þess að vér, sem áður höfum sett von vora til Krists,

skyldum vera dýrð hans til vegsemdar.

13Í honum eruð og þér eftir að hafa heyrt orð sannleikans,

fagnaðarerindið um sáluhjálp yðar

og tekið trú á hann

og verið merkt innsigli heilags anda sem yður var fyrirheitið.

14Hann er pantur arfleifðar vorrar

að vér verðum endurleyst Guði til eignar,

dýrð hans til vegsemdar.

Þakkir og fyrirbæn

15Eftir að hafa heyrt um trú ykkar á Drottin Jesú og um kærleika ykkar til allra heilagra

16hef ég þess vegna ekki heldur látið af að þakka fyrir ykkur er ég minnist ykkar í bænum mínum.

17Ég bið Guð Drottins vors Jesú Krists, föður dýrðarinnar, að gefa ykkur anda speki og opinberunar svo að þið fáið þekkt hann.

18Ég bið hann að upplýsa sjón hjartans svo að þið sjáið hver sú von er sem hann hefur kallað okkur til, hve ríkulega og dýrlega arfleifð hann ætlar okkur meðal hinna heilögu

19og hve kröftuglega hann verkar í okkur sem trúum. En þetta er sami áhrifamikli, kröftugi mátturinn

20sem hann lét koma fram í Kristi er hann vakti hann frá dauðum og lét hann setjast sér til hægri handar á himnum,

21ofar hverri tign og valdi og mætti, ofar öllum herradómi og sérhverju nafni sem nefnt er, ekki aðeins í þessari veröld heldur og í hinni komandi.

22Allt hefur hann lagt undir fætur honum og gefið hann kirkjunni sem höfuðið yfir öllu.

23En kirkjan er líkami hans og fyllist af honum sem sjálfur fyllir allt í öllu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help