1Þegar samtali Davíðs og Sáls lauk vingaðist Jónatan við Davíð. Jónatan elskaði hann eins og sjálfan sig.
2Frá þeim degi tók Sál Davíð til sín og meinaði honum að fara heim til föður síns.
3Jónatan gerði sáttmála við Davíð af því að hann elskaði hann eins og sjálfan sig.
4Jónatan tók af sér yfirhöfnina sem hann bar og gaf Davíð hana. Hann gaf honum einnig herklæði sín, jafnvel sverð sitt, boga og belti.
5Davíð fór í hernað og hvar sem hann fór að boði Sáls gekk honum vel. Sál setti hann því yfir hermenn sína. Öll þjóðin dáði hann, einnig hirðmenn Sáls.
Fjandskapur Sáls gegn Davíð6Þegar herinn sneri heim, eftir að Davíð hafði fellt Filisteann, fóru konur úr öllum borgum Ísraels á móti Sál konungi. Þær sungu og dönsuðu fagnandi og léku á bumbur og symbala.
7Konurnar léku og sungu:
Sál felldi sín þúsund
en Davíð sín tíu þúsund.
8Sál mislíkaði þetta kvæði, reiddist mjög og sagði: „Þær eigna Davíð tíu þúsund en mér aðeins eitt þúsund. Nú vantar hann aðeins konungdóminn.“
9Upp frá þessu leit Sál Davíð jafnan öfundaraugum.
10Daginn eftir hljóp illur andi frá Guði í Sál. Rann á hann æði inni í húsinu á meðan Davíð lék á hörpuna eins og hann gerði dag hvern. Sál hafði spjót í hendi
11og kastaði því. Hann hugsaði með sér: „Nú rek ég Davíð í gegn og festi hann við vegginn,“ en Davíð tókst tvívegis að víkja sér undan.
12Sál tók nú að óttast Davíð af því að Drottinn var með honum en hafði yfirgefið hann sjálfan.
13Hann sendi því Davíð frá sér og gerði hann að foringja yfir þúsund manna herliði. Fór Davíð fyrir liðinu þegar það hélt að heiman og þegar það sneri aftur heim.
14Davíð vegnaði vel hvar sem hann fór því að Drottinn var með honum.
15Þegar Sál sá hve vel honum vegnaði varð hann hræddur við hann.
16En allur Ísrael og Júda elskaði Davíð af því að hann fór fyrir þeim til orrustu og heim aftur.
Davíð mægist við konung17Einhverju sinni sagði Sál við Davíð: „Hér er Merab, elsta dóttir mín. Ég skal gefa þér hana að konu ef þú reynist mér hraustur maður og berst í bardögum Drottins.“ En Sál hugsaði með sér: „Ég skal ekki leggja hendur á hann heldur skulu Filistear verða til þess.“
18Davíð svaraði Sál: „Hver er ég og hver ættkvísl mín og hver er ætt föður míns í Ísrael að ég geti orðið tengdasonur konungs?“
19En þegar sá tími kom að Merab, dóttir Sáls, skyldi gefin Davíð, þá hafði hún þegar verið gefin Adríel frá Mehóla að eiginkonu.
20Míkal, dóttir Sáls, elskaði Davíð og Sál var skýrt frá því. Honum féll það vel
21því að hann hugsaði með sér: „Ég skal gefa honum hana svo að hún verði honum að tálsnöru og Filistear nái honum á sitt vald.“ Sál sagði því öðru sinni við Davíð: „Nú getur þú orðið tengdasonur minn.“
22En Sál bauð þjónum sínum að tala við Davíð svo að lítið bæri á og segja við hann: „Konunginum fellur vel við þig og þú ert vinsæll meðal allra þjóna hans. Nú getur þú orðið tengdasonur konungs.“
23Þjónar Sáls fluttu Davíð þessi skilaboð og hann svaraði: „Finnst ykkur það lítils virði að verða tengdasonur konungsins? Ég er fátækur maður og lítils háttar.“
24Þjónar Sáls sögðu honum þá hvað Davíð hefði sagt.
25En Sál svaraði: „Þetta skuluð þið segja Davíð: Konungur kærir sig ekki um annað brúðarverð en forhúðir hundrað Filistea. Með því vill hann hefna sín á fjandmönnum sínum.“ Þannig gerði Sál ráð fyrir að Davíð félli í hendur Filisteum.
26Þjónar Sáls fluttu Davíð þessa orðsendingu og Davíð lét sér vel líka að mægjast við konung. Áður en tilskilinn tími var liðinn
27bjó Davíð sig, fór ásamt mönnum sínum og felldi tvö hundruð menn úr liði Filistea. Davíð færði konunginum síðan forhúðir þeirra, allar með tölu, svo að hann gæti orðið tengdasonur hans. Sál gaf honum þá Míkal, dóttur sína, fyrir eiginkonu.
28Sál varð það æ ljósara að Drottinn var með Davíð og að Míkal, dóttir Sáls, elskaði hann.
29Varð Sál því enn hræddari við Davíð og gerðist fjandmaður hans ævilangt.
30Höfðingjar Filistea héldu áfram að gera árásir. En í hvert skipti sem þeir fóru í leiðangur gekk Davíð betur en nokkrum öðrum liðsmanni Sáls. Nafn hans varð því víðfrægt.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.