Orðskviðirnir 3 - Biblían (2007)

Leiðin til spekinnar

1Sonur minn, gleymdu ekki kenningu minni

og hjarta þitt varðveiti ráð mín

2því að langa lífdaga, farsæl ár

og velgengni munu þau veita þér ríkulega.

3Kærleikur og tryggð munu aldrei yfirgefa þig.

Festu þau um háls þér og ritaðu þau á spjald hjarta þíns,

4þá muntu hljóta hylli og góð hyggindi,

jafnt í augum Guðs sem manna.

5Treystu Drottni af öllu hjarta

en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.

6Minnstu hans á öllum vegum þínum,

þá mun hann gera leiðir þínar greiðar.

7Þú skalt ekki þykjast vitur

en óttast Drottin og forðast illt,

8það er heilnæmt líkama þínum

og hressing beinum þínum.

9Tignaðu Drottin með eigum þínum

og með frumgróða allrar uppskeru þinnar,

10þá verða hlöður þínar fullar

og vínberjalögurinn mun flóa úr vínþróm þínum.

11Sonur minn, hafnaðu ekki leiðsögn Drottins

og láttu þér ekki gremjast umvöndun hans.

12Drottinn agar þann sem hann elskar

og lætur þann son finna til sem hann hefur mætur á.

13Sæll er sá maður sem öðlast speki,

sá sem hlýtur hyggindi.

14Því að betra er að afla sér hennar en silfurs

og arðurinn af henni er betri en gull.

15Hún er dýrmætari en perlur,

allir dýrgripir þínir jafnast ekki á við hana.

16Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar,

auður og sæmd í vinstri hendi hennar.

17Vegir hennar eru yndislegir vegir

og allar götur hennar liggja til velfarnaðar.

18Hún er tré lífsins þeim sem höndla hana

og sæll er hver sá er heldur fast í hana.

19Drottinn grundvallaði jörðina með visku

og kom himninum fyrir af speki.

20Fyrir þekkingu hans mynduðust hafdjúpin

og döggin drýpur úr skýjunum.

21Sonur minn, varðveittu visku og gætni,

láttu þær ekki víkja frá augum þínum,

22þá verða þær sálu þinni til lífs

og hálsi þínum til prýði.

23Þá muntu ganga veg þinn óhultur

og ekki hrasa.

24Þegar þú leggst til hvíldar þarftu ekki að hræðast

og sofnir þú verður svefninn vær.

25Þú þarft hvorki að kvíða felmtrinu

né eyðingu hinna ranglátu þegar hún dynur yfir

26því að Drottinn verður athvarf þitt

og varðveitir fót þinn svo að hann verði ekki fanginn.

27Synjaðu ekki góðs þeim sem þarfnast

ef það er á þínu valdi að veita það.

28Segðu ekki við náunga þinn: „Farðu og komdu aftur.

Á morgun skal ég gefa þér,“ ef þú átt það til.

29Bruggaðu ekki vélræði gegn náunga þínum

meðan hann dvelst öruggur hjá þér.

30Deildu ekki við neinn að ástæðulausu

hafi hann ekki gert neitt á hlut þinn.

31Öfundaðu ekki ofbeldismanninn

og sækstu ekki eftir neinum verkum hans.

32Því að andstyggð er sá Drottni sem afvega fer

en ráðvandir menn eru alúðarvinir hans.

33Bölvun Drottins er yfir húsi hins rangláta

en bústað réttlátra blessar hann.

34Háðska menn hæðir hann

en hógværum veitir hann náð.

35Vitrir menn hljóta heiður

en heimskingjar bera smán úr býtum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help