1Salómon konungur ríkti yfir öllum Ísrael
2og þetta voru æðstu embættismenn hans: Asarja Sadóksson var prestur;
3Elíhoref og Ahía, synir Sísa, voru ríkisritarar; Jósafat Ahílúðsson var kallari
4og Benaja Jójadason var yfirhershöfðingi. Sadók og Abjatar voru prestar.
5Asarja Natansson var yfirmaður héraðsstjóranna; Sabúð Natansson prestur var vinur konungs.
6Ahísar var hallarráðsmaður og Adoníram Abdason var yfir kvaðavinnumönnum.
7Salómon hafði tólf héraðsstjóra yfir öllum Ísrael. Þeir sáu konungi og hirð hans fyrir vistum, sinn mánuðinn hver árið um kring.
8Þetta eru nöfn þeirra: sonur Húrs á Efraímsfjöllum,
9sonur Dekers í Makas, Saalbím, Bet Semes, Elon og Bet Hanan,
10sonur Heseðs í Arúbbót. Undir hans stjórn var Sókó og allt Hefersland.
11Sonur Abínadabs stjórnaði öllu Dórhálendi. Hann var kvæntur Tafat, dóttur Salómons.
12Baana Ahílúðsson stjórnaði Taanak, Megiddó og öllu Bet Sean sem er hjá Sartean fyrir neðan Jesreel, frá Bet Sean til Abel Mehóla og út fyrir Jokmeam.
13Sonur Gebers var héraðsstjóri í Ramót í Gíleað. Hann stýrði tjaldþyrpingum Jaírs, sonar Manasse, í Gíleað og héraðinu Argób sem er í Basan, sextíu stórum borgum, víggirtum með múrum og með slagbröndum úr eir.
14Ahínadab Iddóson var héraðsstjóri í Mahanaím,
15Akímaas var héraðsstjóri í Naftalí. Hann hafði einnig gengið að eiga Basmat, eina af dætrum Salómons.
16Baana Húsaíson var héraðsstjóri yfir Asser og Bealót.
17Jósafat Parúason var héraðsstjóri yfir Íssakar,
18Símeí Elason var yfir Benjamín.
19Geber Úríson var héraðsstjóri yfir Gíleaðlandi sem Síhon, konungur Amoríta, og Óg, konungur í Basan, höfðu átt. Einn héraðsstjóri var yfir Júda.
20Júdamenn og Ísraelsmenn voru eins margir og sandkorn á sjávarströnd. Þeir átu og drukku og voru glaðir.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.