1Jósafat var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum og grafinn hjá þeim í borg Davíðs. Jóram, sonur hans, varð konungur eftir hann.
2Bræður hans, synir Jósafats, voru: Asarja, Jehíel, Sakaría, Asarjahú, Mikael og Sefatja. Allir voru þeir synir Jósafats Júdakonungs.
3Faðir þeirra hafði gefið þeim miklar gjafir, silfur, gull og aðrar gersemar ásamt víggirtum borgum í Júda. En konungdóminn fékk hann Jóram í hendur af því að hann var frumburðurinn.
4Þegar Jóram hafði hafið sig til konungstignar föður síns og fest sig í sessi drap hann alla bræður sína með sverði ásamt nokkrum af höfðingjum Ísraels.
Jóram konungur Júda5Jóram var þrjátíu og tveggja ára þegar hann varð konungur og ríkti átta ár í Jerúsalem.
6Hann fetaði í fótspor Ísraelskonunga eins og ætt Akabs hafði gert enda var dóttir Akabs eiginkona hans. Hann gerði það sem illt var í augum Drottins.
7Þrátt fyrir það vildi Drottinn ekki eyða ætt Davíðs vegna sáttmálans sem hann hafði gert við Davíð og af því að hann hafði heitið að gefa honum og sonum hans lampa sem stæði alla tíð.
8Um daga Jórams brutust Edómítar undan valdi Júda og tóku sér sinn eigin konung.
9Jóram hélt þá gegn þeim ásamt höfðingjum sínum með alla hervagna sína. Um nóttina réðst hann á Edómíta sem höfðu umkringt hann og foringja vagnliðsins.
10En Edóm braust undan valdi Júda og hefur verið sjálfstætt til þessa dags. Á sama tíma braust Líbna einnig undan valdi hans því að Jóram hafði yfirgefið Drottin, Guð feðra sinna.
11Hann reisti meira að segja fórnarhæðir á fjöllunum í Júda og afvegaleiddi Jerúsalembúa og tældi Júdamenn til fráfalls.
12Þá barst honum bréf frá Elía spámanni og þar stóð: „Svo segir Drottinn, Guð Davíðs, föður þíns: Þar sem þú hefur ekki breytt eins og Jósafat, faðir þinn, og Asa Júdakonungur,
13heldur eins og Ísraelskonungar og hefur afvegaleitt Júdamenn og Jerúsalembúa eins og ætt Akabs hefur gert og þar sem þú hefur drepið bræður þína sem voru betri en þú, þína eigin ættmenn,
14þá mun Drottinn ljósta þjóð þína, syni, konur og allt sem þú átt, þungum höggum.
15Sjálfur muntu taka þunga sótt og líða langvinnar innvortis kvalir þar til innyflin ganga út úr þér vegna sjúkdómsins.“
Jóram deyr16Nú eggjaði Drottinn Filistea og þá Araba, sem búa nærri Kússítum, til fjandskapar gegn Jóram.
17Þeir héldu til árása á Júda, réðust á landið og höfðu á brott með sér allar eigur konungsfjölskyldunnar sem þeir fundu, einnig syni konungs og konur. Af sonum hans var aðeins Jóahas, yngsti sonurinn, skilinn eftir.
18Eftir allt þetta sló Drottinn hann ólæknandi iðrasjúkdómi.
19Að alllöngum tíma liðnum, nær tveimur árum, gengu iðrin út úr honum vegna sjúkdómsins og hann dó kvalafullum dauða. Þjóð hans kveikti ekki bál honum til heiðurs eins og gert hafði verið fyrir feður hans.
20Hann var þrjátíu og tveggja ára þegar hann varð konungur og ríkti átta ár í Jerúsalem. Hann lést án þess að nokkur syrgði hann. Hann var grafinn í borg Davíðs en þó ekki í gröfum konunganna.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.