1Breytið eftir mér eins og ég breyti eftir Kristi.
Um ytri hegðun2Ég hrósa ykkur fyrir það að þið í öllu minnist mín og haldið fast við kenningarnar eins og ég flutti ykkur þær.
3En ég vil að þið vitið að Kristur er höfuð sérhvers karlmanns, að karlmaðurinn er höfuð konunnar og Guð höfuð Krists.
4Sérhver sá karlmaður, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs og hefur á höfðinu, hann óvirðir höfuð sitt.
5En sérhver kona, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs berhöfðuð, óvirðir höfuð sitt. Það er hið sama sem hún hefði látið krúnuraka sig.
6Ef konan því vill ekki hylja höfuð sitt, þá láti hún klippa sig. En ef það er óvirðing fyrir konuna að láta klippa eða raka hár sitt, þá hafi hún á höfðinu.
7Karlmaður á ekki að hylja höfuð sitt því að hann er ímynd Guðs og endurspeglar dýrð hans en konan endurspeglar dýrð mannsins.
8Því ekki er karlinn af konunni kominn heldur konan af karlinum
9og ekki var heldur karlinn skapaður vegna konunnar heldur konan vegna karlsins.
10Þess vegna á konan að bera á höfði sér tákn um valdsvið sitt vegna englanna.
11Þó er hvorki konan óháð karlmanninum né karlmaðurinn konunni í samfélaginu við Drottin
12því að eins og konan er komin af karlinum, svo er og karlinn fæddur af konunni en allt er frá Guði.
13Dæmið sjálf: Sæmir það konu að biðja til Guðs berhöfðuð?
14Kennir ekki sjálf náttúran ykkur að ef karlmaður ber sítt hár, þá er það honum vansæmd
15en ef kona ber sítt hár, þá er það henni sæmd? Því að síða hárið er gefið henni í höfuðblæju stað.
16En ætli nú einhver sér að gera þetta að kappsmáli, þá er slíkt ekki venja okkar eða safnaða Guðs.
17En um leið og ég gef ykkur þessi fyrirmæli get ég ekki hrósað ykkur fyrir samkomur ykkar sem eru fremur til ills en góðs.
18Í fyrsta lagi heyri ég að þið skiptist í hópa þegar söfnuðurinn kemur saman. Því trúi ég að nokkru leyti.
19Reyndar verða flokkar að vera meðal ykkar til þess að í ljós komi hverjum má treysta.
20En þegar þið komið saman verður það ekki til þess að neyta máltíðar Drottins,
21því hver um sig neytir síns matar fyrir fram og svo er einn hungraður og annar drekkur sig ölvaðan.
22Hafið þið þá ekki hús til að eta í og drekka? Viljið þið vanvirða söfnuð Guðs og auðmýkja þá sem ekkert eiga? Hvað á ég að segja við ykkur? Á ég að hæla ykkur fyrir þetta? Nei, ég hæli ykkur ekki.
23Því að ég hef meðtekið frá Drottni það sem ég hef kennt ykkur: Nóttina, sem Drottinn Jesús var svikinn, tók hann brauð,
24gerði þakkir, braut það og sagði: „Þetta er líkami minn. Gjörið þetta í mína minningu.“
25Sömuleiðis tók hann og bikarinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: „Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði. Gjörið þetta, svo oft sem þér drekkið, í mína minningu.“
26Hvert sinn sem þið etið þetta brauð og drekkið af bikarnum boðið þið dauða Drottins þangað til hann kemur.
27Hver sem etur brauðið eða drekkur bikar Drottins á óverðugan hátt verður þess vegna sekur við líkama og blóð Drottins.
28Hver maður prófi sjálfan sig áður en hann etur af brauðinu og drekkur af bikarnum.
29Því að sá sem etur og drekkur án þess að gera sér grein fyrir að það er líkami Drottins, hann etur og drekkur sér til dómsáfellis.
30Þess vegna eru svo margir sjúkir og lasburða á meðal ykkar og allmargir deyja.
31Ef við dæmdum um okkur sjálf yrðum við ekki dæmd.
32En þegar Drottinn dæmir okkur er hann að aga okkur til þess að við verðum ekki dæmd sek ásamt heiminum.
33Systkin, þess vegna skuluð þið bíða hvert eftir öðru þegar þið komið saman til að matast.
34Ef nokkur er hungraður, þá eti hann heima til þess að samkomur ykkar verði ykkur ekki til dómsáfellis. Annað mun ég segja til um þegar ég kem.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.