1Það orð er satt. Sækist einhver eftir biskupsstarfi þá girnist hann göfugt hlutverk.
2Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, bindindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn, góður fræðari,
3ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, heldur gæfur, ekki deilugjarn, ekki fégjarn.
4Hann á að vera maður sem veitir góða forstöðu heimili sínu og venur börn sín á hlýðni og alla prúðmennsku.
5Hvernig má sá sem ekki hefur vit á að veita heimili sínu forstöðu veita söfnuði Guðs umsjón?
6Hann á ekki að vera nýr í trúnni til þess að hann ofmetnist ekki og verði fyrir sama dómi og djöfullinn.
7Hann á líka að hafa góðan orðstír hjá þeim sem standa fyrir utan til þess að hann verði ekki fyrir álasi og lendi í tálsnöru djöfulsins.
8Svo eiga og djáknar að vera heiðvirðir, hreinskilnir, ekki drykkfelldir eða ágjarnir.
9Þeir skulu varðveita leyndardóm trúarinnar með hreinni samvisku.
10Einnig þá skal fyrst reyna, síðan takist þeir þjónustuna á hendur ef þeir eru óaðfinnanlegir.
11Ef konur eru djáknar skulu þær vera heiðvirðar, ekki rógberar, heldur bindindissamar, trúar í öllu.
12Djáknar séu einkvæntir og hafi góða stjórn á börnum sínum og heimilum.
13Því að þeir sem hafa staðið sig vel sem djáknar ávinna sér góðan orðstír og mikla djörfung í trúnni á Krist Jesú.
14Þótt ég vonist til að koma bráðum til þín rita ég þetta
15til þess að þú skulir vita, ef mér seinkar, hvernig á að haga sér í Guðs húsi. Guðs hús er söfnuður lifanda Guðs, stólpi og grundvöllur sannleikans.
16Og víst er leyndardómur trúarinnar mikill:
Hann birtist í manni,
sannaðist í anda,
opinber englum,
var boðaður þjóðum,
trúað í heimi,
hafinn upp í dýrð.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.