Orðskviðirnir 11 - Biblían (2007)

1Svikin vog er Drottni andstyggð

en rétt vog er honum geðfelld.

2Komi hroki kemur og smán

en hjá hinum hógværu er viska.

3Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá

en undirferli lygarans tortímir honum.

4Lítt gagna auðæfi á degi reiðinnar

en réttlæti frelsar frá dauða.

5Réttlæti hins ráðvanda gerir veg hans sléttan

en hinn rangláti hrasar um eigin illsku.

6Réttlæti hinna hreinskilnu frelsar þá

en lygarar ánetjast eigin græðgi.

7Í dauðanum brestur von hins rangláta

og væntingar illvirkjans bregðast.

8Hinn réttláti frelsast úr nauðum,

hinn rangláti kemur í hans stað.

9Með orðum tortímir hinn rangláti náunga sínum

en þekking hinna réttlátu bjargar þeim.

10Borgin fagnar gæfu réttlátra

og þegar ranglátir menn farast gjalla gleðióp.

11Blessun hinna réttsýnu reisir borgina

en orð ranglátra steypa henni.

12Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu

en vitur maður þegir.

13Rógberinn ljóstrar upp leyndarmáli

en hinn þagmælski virðir trúnað.

14Án stjórnar tortímist herinn

en séu ráðgjafar margir getur allt farið vel.

15Illa fer fyrir þeim sem gengur í ábyrgð fyrir annan mann,

sá sem forðast handsöl er óhultur.

16Yndisleg kona hlýtur sæmd,

hinn ötuli hlýtur auð.

17Kærleiksríkur maður vinnur sjálfum sér gagn,

harðlyndur maður vinnur sér mein.

18Hinn rangláti eignast sýndarávinning

en sá sem réttlæti sáir hlýtur ósvikin laun.

19Að stunda réttlæti leiðir til lífs,

að elta hið illa leiðir til dauða.

20Fláráðir eru Drottni andstyggð

en hinir vammlausu yndi hans.

21Víst er að hinn illi sleppur ekki við refsingu

en hinir réttlátu eru óhultir.

22Eins og gullhringur í svínstrýni

er fríð kona sem enga háttvísi kann.

23Óskir hinna réttlátu leiða aðeins til góðs

en vonir ranglátra kalla yfir sig reiðidóm.

24Einn miðlar öðrum af örlæti og eignast æ meira,

annar heldur í meira en rétt er og verður þó enn snauðari.

25Örlátur maður hlýtur ríkulega umbun

og sá sem gefur öðrum að drekka fær þorsta sínum svalað.

26Fólkið formælir þeim sem heldur í kornið

en blessun kemur yfir þann sem býður það falt.

27Sá sem leitar góðs leitar velþóknunar

en sá sem sækist eftir illu verður fyrir því.

28Sá fellur sem treystir á auð sinn

en hinir réttlátu þrífast sem trjálauf.

29Sá sem spillir heimili sínu mun erfa vindinn

en heimskinginn verður þræll hins vitra.

30Ávöxtur réttlætisins er lífstré

og hinn vitri eignast hylli manna.

31Fái hinn réttláti endurgjald hér á jörðu,

hvað þá um hinn rangláta og syndarann?

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help