Jósúabók 8 - Biblían (2007)

Aí fellur

1Drottinn sagði við Jósúa: „Óttastu ekki, lát ekki hugfallast. Taktu allan herinn með þér og haltu til Aí. Ég sel þér konung Aí í hendur, þjóð hans, borg og land.

2Þú skalt fara með Aí og konung hennar eins og þú fórst með Jeríkó og konung hennar. Samt megið þið taka herfangið úr henni og fénað handa sjálfum ykkur. Láttu menn leggjast í launsátur að baki borginni.“

3Þá hélt Jósúa og allur herinn upp til Aí. Jósúa valdi þrjátíu þúsund reynda hermenn og sendi þá af stað um nóttina

4og lagði fyrir þá: „Þið skuluð leggjast í launsátur á bak við borgina en samt ekki of langt frá henni og verið allir viðbúnir.

5En ég og allt liðið, sem með mér er, mun halda gegn borginni. Ef borgarbúar gera útrás eins og í fyrra skiptið munum við flýja undan þeim.

6Þeir munu veita okkur eftirför þar til við höfum króað þá af nokkuð frá borginni því að þeir munu hugsa með sér: Þeir flýja undan okkur eins og í fyrra skiptið. En þegar við erum lagðir á flótta undan þeim

7skuluð þið sækja fram úr launsátrinu og taka borgina. Drottinn, Guð ykkar, mun selja ykkur borgina í hendur.

8Þegar þið hafið tekið borgina skuluð þið leggja eld að henni. Hlýðið boði Drottins. Það býð ég ykkur.“

9Síðan sendi Jósúa þá af stað og þeir fóru og lögðust í launsátur vestan við Aí, á milli Betel og Aí. En Jósúa dvaldist þessa nótt með fólkinu.

10Morguninn eftir var Jósúa snemma á fótum. Hann kannaði liðið og síðan hélt hann og öldungar Ísraels í broddi fylkingar upp til Aí.

11Allt herliðið, sem var með honum, fór upp eftir í átt til borgarinnar og þar til þeir stóðu gegnt henni. Þeir settu herbúðir sínar norðan við borgina en dalur var milli búðanna og Aí.

12Jósúa valdi um fimm þúsund menn og lét þá leggjast í launsátur vestan við Aí, milli Betel og Aí.

13Fólkið hafði sett upp búðir norðan við borgina og í launsátrinu vestan hennar. En Jósúa dvaldist í dalnum um nóttina.

14Þegar konungurinn í Aí sá þetta hraðaði hann sér og allir borgarmenn með honum snemma morguns til að mæta Ísrael í bardaga á tilteknum stað gegnt Arabasléttu. En hann vissi ekki að honum hafði verið gert launsátur vestan við borgina.

15Jósúa og allur Ísrael létu eins og þeir hefðu verið ofurliði bornir og flýðu í átt til eyðimerkurinnar.

16Allir borgarbúar voru þá kallaðir saman til þess að reka flóttann. Þeir veittu Jósúa eftirför og voru króaðir af nokkuð frá borginni.

17Allir sem eftir voru í Aí og Betel héldu á eftir Ísrael. Þeir skildu borgina eftir opna og óvarða á meðan þeir eltu Ísrael.

18Þá sagði Drottinn við Jósúa:

„Réttu fram spjótið, sem er í hendi þinni, í áttina að Aí því að ég sel þér hana í hendur.“

Jósúa rétti þá fram spjótið, sem var í hendi hans, í áttina að borginni.

19Um leið og hann rétti út hönd sína risu mennirnir, sem voru í launsátrinu, upp af stað sínum. Þeir þustu fram og komust inn í borgina, unnu hana og lögðu eld í hana umsvifalaust.

20Þá sneru Aímenn sér við og sáu reykjarmökk leggja upp af borginni til himins. En þeir komust hvorki fram né aftur og áttu enga undankomuleið því að liðið, sem flúið hafði í átt til eyðimerkurinnar, sneri nú við gegn þeim sem ráku flótta þeirra.

21Þegar Jósúa og allur Ísrael sáu að launsátursmennirnir höfðu tekið borgina og að reyk lagði upp af henni sneru þeir við og tóku að höggva Aímenn.

22Þeir höfðu farið út úr borginni á móti Ísraelsmönnum en lentu innan um þá, sumir hér og aðrir þar. Ísraelsmenn hjuggu Aímenn til síðasta manns, enginn varð eftir og enginn bjargaði sér á flótta.

23En þeir gripu konunginn í Aí lifandi og færðu Jósúa hann.

24Þegar Ísraelsmenn höfðu fellt alla íbúa Aí úti á sléttunni og í eyðimörkinni þangað sem þeir höfðu veitt þeim eftirför, og allir sem einn voru fallnir fyrir sverðseggjum, sneru Ísraelsmenn aftur til Aí.

25Tólf þúsund féllu þennan dag, karlar og konur, allir íbúar Aí.

26En Jósúa dró ekki að sér höndina sem hann hélt spjótinu í fyrr en hann hafði helgað alla Aímenn banni.

27En Ísrael tók búfé og ránsfeng eins og Drottinn hafði boðið Jósúa.

28Því næst brenndi Jósúa Aí og gerði hana að ævarandi grjóthaug, gereyddum stað eins og hún hefur verið allt til þessa dags.

29En Jósúa hengdi konung Aí í tré og lét hann hanga þar til kvölds. Um sólarlag skipaði Jósúa að taka lík hans niður. Var því fleygt út fyrir borgarhliðið. Því næst var gerð mikil steindys yfir hann og er hún þar enn í dag.

Altari reist á Ebalfjalli

30Jósúa reisti Drottni, Guði Ísraels, altari á Ebalfjalli.

31Það var úr óhöggnum steinum sem ekkert járnverkfæri hafði snert, eins og Móse, þjónn Drottins, hafði lagt fyrir Ísraelsmenn og ritað er í lögbók Móse. Á altarinu voru Drottni færðar brennifórnir og heillafórnir.

32Enn fremur skráði Jósúa í augsýn allra Ísraelsmanna þarna á steinana eftirrit af lögmáli Móse.

33Allur Ísrael, öldungar, embættismenn og dómarar stóðu báðum megin við örkina andspænis Levítaprestunum sem báru sáttmálsörk Drottins, einnig innbornir og aðkomumenn. Helmingur fólksins sneri að Garísímfjalli en hinn helmingurinn að Ebalfjalli eins og Móse, þjónn Drottins, hafði boðið í upphafi þegar hann gaf fyrirmæli um að blessa Ísraelsþjóð.

34Því næst las Jósúa upp lagasafnið, orð fyrir orð, blessunina og bölvunina, nákvæmlega eins og skráð er í lögbókinni.

35Allt það sem Móse hafði gefið fyrirmæli um las Jósúa frammi fyrir öllum söfnuði Ísraels, einnig konum, börnum og þeim aðkomumönnum sem slegist höfðu í för með þeim, og sleppti engu orði.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help