Jóel 4 - Biblían (2007)

Þjóðirnar dæmdar

1 Á þeim tíma og á þeim dögum

er ég rétti hag Júda og Jerúsalem

2safna ég saman öllum þjóðum

og stefni þeim niður í Jósafatsdal.

Og þar sæki ég þær til saka

vegna lýðs míns og arfleifðar Ísraels

því að þær hafa tvístrað henni meðal þjóðanna

og hlutað sundur land mitt.

3Þeir hafa varpað hlutkesti um þjóð mína,

látið pilt fyrir skækju

og ungmey fyrir vínið sem þeir drukku.

4Hvað viljið þér mér, Týrus, Sídon og öll Filisteahéruð? Hyggið þér á málagjöld einhvers sem ég hef gert yður? Hyggist þér endurgjalda mér? Skjótt og sviplega læt ég þá verk yðar koma yður í koll.

5Þér hafið rænt silfri mínu og gulli og fært ágætustu gersemar mínar í hof yðar.

6Júdamenn og Jerúsalembúa hafið þér selt Grikkjum þannig að þeir fluttust langt burt frá átthögum sínum.

7En ég kalla þá burt þaðan sem þér selduð þá, og verk yðar munu hitta sjálfa yður fyrir.

8Syni yðar og dætur sel ég Júdamönnum. Þeir munu aftur selja þau Sabamönnum, fjarlægri þjóð, því að svo hefur Drottinn mælt.

9Boðið þetta meðal þjóðanna:

Búið yður til stríðs.

Kallið út kempurnar.

Allir stríðsmenn komi fram og búist til hernaðar.

10Smíðið sverð úr plógjárnum yðar

og spjót úr sniðlum yðar.

Hver vesalingur hrópi: „Ég er garpur.“

11Skundið af stað, komið hvaðanæva, allar þjóðir.

Safnist þar saman.

Drottinn, sendu niður kappa þína þangað.

12Þjóðirnar skulu halda í flýti

upp til Jósafatsdals.

Þar sest ég í dómarasæti

yfir grannþjóðunum öllum.

13Bregðið sigðinni,

vínberin eru fullþroskuð.

Komið og troðið.

Svo full er vínþróin

að lagarkerin flóa yfir.

Svo mikil er illska þeirra.

14Mannþröng, mannsægur

í Dal dómsins.

Nálægur er dagur Drottins

í Dal dómsins.

Dagur Drottins

15Sól og tungl myrkvast

og stjörnurnar synja um birtu sína.

16En Drottinn þrumar frá Síon

og hefur upp raust sína frá Jerúsalem

svo að himinn og jörð nötra.

En lýð sínum veitir Drottinn skjól

og Ísraelsmönnum er hann athvarf.

17Og yður verður ljóst að ég, Drottinn, Guð yðar,

bý á Síon, hinu heilaga fjalli mínu.

Jerúsalem verður heilög,

aðkomumenn munu aldrei framar ryðjast þar í gegn.

18Á þeim degi

drýpur vínlögur af fjöllunum,

hæðirnar fljóta í mjólk

og vatn mun streyma um alla farvegi í Júda.

Og lind mun streyma frá húsi Drottins

og fylla farveg Akasíudalsins.

Endurlausn Júda

19Egyptaland verður að auðn

og Edóm að mannlausum öræfum

vegna ofbeldisins gegn Júdamönnum.

Í landi þeirra úthelltu þeir saklausu blóði.

20En Júda verður byggð að eilífu

og Jerúsalem um aldir alda.

21Saklaust mun ég telja það blóð

sem ég mat áður til blóðsakar.

Og Drottinn mun dveljast um kyrrt á Síon.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help