Fyrri Samúelsbók 8 - Biblían (2007)

Samúel og SálKrafa um konung

1Þegar Samúel var orðinn gamall gerði hann syni sína að dómurum í Ísrael.

2Frumgetinn sonur hans hét Jóel en sá næsti Abía. Þeir voru dómarar í Beerseba.

3En synir hans fetuðu ekki í fótspor hans. Þeir voru ágjarnir, þágu mútur og hölluðu þar með réttinum.

4Þá söfnuðust allir öldungar Ísraels saman, komu til Samúels í Rama

5og sögðu við hann: „Þú ert orðinn gamall og synir þínir feta ekki í fótspor þín. Þú skalt því setja okkur konung eins og allar aðrar þjóðir hafa.“

6En Samúel mislíkaði að þeir sögðu: „Fáðu okkur konung sem ríki yfir okkur.“ Samúel bað því til Drottins

7og Drottinn svaraði honum: „Hlýddu kröfu fólksins og gerðu allt sem það biður um. Þjóðin hefur ekki hafnað þér heldur hefur hún hafnað mér sem konungi sínum.

8Hún er söm við sig. Allt frá þeim degi er ég leiddi þjóðina frá Egyptalandi og til þessa dags hefur hún sífellt snúið við mér baki og þjónað öðrum guðum. Eins ferst henni nú við þig.

9En þú skalt verða við kröfu hennar. Fyrst skaltu vara hana alvarlega við og kynna henni réttindi konungsins sem skal ríkja yfir henni.“

10Því næst greindi Samúel fólkinu, sem hafði krafist konungs af honum, frá öllum orðum Drottins

11og bætti við: „Konungurinn, sem á að ríkja yfir ykkur, hefur þennan rétt: Hann sækir syni ykkar, setur þá á stríðsvagna sína og hesta og þeir hlaupa á undan vagni hans.

12Hann gerir syni ykkar að liðsforingjum yfir þúsund mönnum eða flokksforingjum yfir fimmtíu. Hann lætur þá plægja akra sína, vinna við uppskeruna, smíða vopn sín og búnað stríðsvagna sinna.

13Hann sækir dætur ykkar til að búa til smyrsl, elda og baka.

14Hann tekur af ykkur bestu landspildurnar, víngarðana og olíulundina og fær hirðmönnum sínum.

15Hann tekur tíund af afrakstri kornakra ykkar og víngarða og fær hirðmönnum sínum og höfðingjum.

16Hann sækir þræla ykkar og ambáttir, bestu uxa ykkar og asna og tekur til sinna nota.

17Hann tekur tíund af fénaði ykkar og þið verðið þrælar hans.

18Þá munuð þið kveina undan þeim konungi sem þið hafið kosið en Drottinn mun ekki bænheyra ykkur.“

19Fólkið vildi ekki hlusta á það sem Samúel sagði. Þvert á móti sagði það: „Nei, við viljum hafa konung yfir okkur.

20Við viljum vera eins og allar aðrar þjóðir. Konungurinn skal ríkja yfir okkur og hann skal fara fyrir okkur og heyja stríð okkar.“

21Samúel hlustaði á allt sem fólkið sagði og skýrði Drottni frá því.

22Drottinn svaraði Samúel: „Hlýddu kröfu fólksins og fáðu því konung.“ Þá sagði Samúel við Ísraelsmenn: „Farið heim, hver til sinnar borgar.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help