Jesaja 66 - Biblían (2007)

Guðsþjónustan og musterið

1Svo segir Drottinn:

Himinninn er hásæti mitt og jörðin fótskör mín.

Hvar er húsið sem þér gætuð reist mér,

hvar sá staður sem verið gæti hvíldarstaður minn?

2Allt þetta gerði hönd mín

og allt þetta er mitt, segir Drottinn.

Samt lít ég til þess sem er umkomulaus og beygður í anda

og skelfur fyrir orði mínu.

3Sá sem slátrar nauti er engu mætari en manndrápari,

sá sem færir sauð í sláturfórn er engu mætari en sá sem hefur hálsbrotið hund,

sá sem færir kornfórn ber fram svínablóð,

sá sem brennir reykelsi blessar skurðgoð.

4Þeir völdu sína eigin vegi

og gleðjast yfir viðurstyggðum sínum,

eins valdi ég þeim misþyrmingar

og sendi það yfir þá sem þeir skelfast

því að ég hrópaði en enginn svaraði,

talaði en enginn hlustaði.

Þeir gerðu það sem illt var í augum mínum

og höfðu mætur á því sem mér mislíkaði.

5Heyrið orð Drottins, þér sem skjálfið fyrir boðskap hans.

Bræður yðar, sem hata yður

og hrekja yður brott vegna nafns míns, segja:

„Drottinn birtist í dýrð sinni

svo að vér getum séð gleði yðar,“

en þeir skulu til skammar verða.

6Heyr gnýinn frá borginni, heyr óminn frá musterinu.

Heyr, Drottinn endurgeldur fjandmönnum sínum verk þeirra.

7Áður en kona fær hríðir

hefur hún fætt,

áður en hún tekur jóðsótt

hefur hún alið sveinbarn.

8Hver hefur heyrt annað eins,

hver séð nokkuð þessu líkt?

Fæðist land á einum degi,

þjóð í einni andrá?

Óðar en Síon fékk hríðir

fæddi hún syni sína.

9Opna ég móðurlíf

án þess að barn fæðist

eða læt ég fæðingu hefjast

og hindra hana síðan? segir Guð þinn.

10Gleðjist með Jerúsalem og fagnið í henni,

allir þér sem elskið hana,

fagnið með henni og kætist,

allir þér sem eruð hryggir hennar vegna

11svo að þér getið sogið og saðst af huggunarbrjósti hennar,

svo að þér getið teygað og gætt yður á nægtabarmi hennar.

12Því að svo segir Drottinn:

Ég veiti velsæld til hennar eins og fljóti

og auðæfum þjóðanna eins og bakkafullum læk.

Brjóstmylkingar hennar verða bornir á mjöðminni

og þeim hossað á hnjánum.

13Eins og móðir huggar barn sitt,

eins mun ég hugga yður,

í Jerúsalem verðið þér huggaðir.

14Þegar þér sjáið þetta mun hjarta yðar fagna

og bein yðar blómgast sem grængresi.

Hönd Drottins birtist þjónum hans

en reiðin bitnar á fjandmönnum hans.

15Því sjá, Drottinn kemur í eldi

og stríðsvagnar hans verða sem stormsveipur,

hann kemur til að endurgjalda með glóandi reiði sinni

og logandi heift sinni.

16Því að Drottinn kemur í eldi

til að dæma alla jörðina

og allt hold með sverði sínu

og margir verða vegnir af Drottni.

17Þeir sem helga sig og hreinsa til að fara í garðana

og leita þann uppi sem er í miðjunni,

eta svínakjöt, maðka og mýs,

munu allir farast, segir Drottinn.

Ég þekki athafnir þeirra og hugsanir.

Allar þjóðir tilbiðja Guð Ísraels

18Ég mun sjálfur koma til að stefna saman öllum þjóðum og tungum og þær munu koma og sjá dýrð mína.

19Ég mun setja upp tákn á meðal þeirra og senda þá sem undan komust til þjóðanna í Tarsis, Pút, Lúd, Mesek, Túbal, Javan og á hinum fjarlægu eyjum sem hvorki hafa heyrt neitt um mig né séð dýrð mína og þeir skulu skýra frá dýrð minni meðal þjóðanna.

20Þeir skulu flytja alla bræður yðar frá öllum þjóðum sem fórnargjöf til Drottins, á hestum og í vögnum og burðarstólum, á múldýrum og úlföldum til míns heilaga fjalls, til Jerúsalem, segir Drottinn, eins og þegar Ísraelsmenn færa kornfórn í hreinum kerum til húss Drottins.

21Ég mun jafnvel velja nokkra þeirra til að vera prestar og Levítar, segir Drottinn.

22Já, eins og hinn nýi himinn

og hin nýja jörð, sem ég skapa,

standa frammi fyrir augliti mínu, segir Drottinn,

munu niðjar yðar og nafn standa þar.

23Frá tunglkomudegi til tunglkomudags

og frá hvíldardegi til hvíldardags

koma allir menn til að falla fram fyrir augliti mínu, segir Drottinn.

24Þeir munu ganga út og sjá lík þeirra sem risu gegn mér.

Hvorki deyja í þeim maðkarnir

né slokknar í þeim eldurinn

og þeir verða öllum mönnum viðurstyggð.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help