Fyrra Korintubréf 7 - Biblían (2007)

Um sambúð

1En svo að ég minnist á það sem þið hafið ritað, þá er það gott fyrir mann að vera ekki við konu kenndur.

2En til þess að forðast saurlífi hafi hver karlmaður sína eiginkonu og hver kona sinn eiginmann.

3Karlmaðurinn gæti skyldu sinnar gagnvart konunni og sömuleiðis konan gagnvart karlmanninum.

4Ekki hefur konan vald yfir eigin líkama heldur karlmaðurinn. Sömuleiðis hefur og karlmaðurinn ekki heldur vald yfir eigin líkama heldur konan.

5Haldið ykkur eigi hvort frá öðru nema þá eftir samkomulagi um stundarsakir, til þess að þið getið haft næði til bænahalds, og takið svo saman aftur til þess að Satan freisti ykkar ekki vegna ístöðuleysis ykkar.

6Þetta er ekki neitt valdboð heldur ábending.

7En þess óska ég að allir menn væru eins og ég er sjálfur en hver hefur sína náðargjöf frá Guði, einn þessa og annar hina.

8Hinum ógiftu og ekkjunum segi ég að þeim er best að halda áfram að vera ein eins og ég.

9En hafi þau ekki taumhald á sjálfum sér, þá gangi þau í hjónaband því að betra er að ganga í hjónaband en að brenna af girnd.

10Þeim sem gengið hafa í hjónaband býð ég, þó ekki ég heldur Drottinn, að konan skuli ekki skilja við mann sinn,

11en hafi hún skilið við hann, þá sé hún áfram ógift eða sættist við manninn. Maðurinn á ekki heldur að skilja við konuna.

12En við hina segi ég, ekki Drottinn: Ef bróðir nokkur á vantrúaða konu og hún lætur sér það vel líka að búa saman við hann, þá skilji hann ekki við hana.

13Og kona, sem á vantrúaðan mann og hann lætur sér vel líka að búa saman við hana, skilji ekki við hann.

14Því að vantrúaði maðurinn er helgaður af konunni og vantrúaða konan er helguð af bróðurnum. Annars væru börn ykkar óhrein en nú eru þau hrein.

15En ef hinn vantrúaði vill skilja, þá fái hann skilnað. Hvorki bróðir né systir eru þrælbundin í slíkum efnum. Guð hefur kallað ykkur að lifa í friði.

16Því að hvað veist þú, kona, hvort þú munir geta frelsað mann þinn? Eða hvað veist þú, maður, hvort þú munir geta frelsað konu þína?

Verði keyptir

17Þó skal hver og einn lifa því lífi sem Drottinn hefur úthlutað honum og vera áfram í þeirri stöðu sem hann var í þegar Guð kallaði hann. Þannig mæli ég fyrir í öllum söfnuðunum.

18Sá sem var umskorinn, þegar hann var kallaður, breyti því ekki. Sá sem var óumskorinn láti ekki umskera sig.

19Það skiptir ekki máli hvort maður er umskorinn eða ekki, heldur að hann haldi boðorð Guðs.

20Hver og einn sé kyrr í þeirri stöðu sem hann var kallaður í.

21Varst þú þræll er þú varst kallaður? Set það ekki fyrir þig en ef þú getur orðið frjáls, þá kjós það heldur.

22Því að sá sem var þræll er Drottinn kallaði hann er frelsingi Drottins. Á sama hátt er sá sem var frjáls er Drottinn kallaði hann þræll Krists.

23Þið eruð verði keyptir. Verðið ekki þrælar manna.

24Bræður, sérhver verði frammi fyrir Guði kyrr í þeirri stétt sem hann var í þegar Guð kallaði hann.

25Um einlífi hef ég enga skipun frá Drottni. En álit mitt læt ég í ljós eins og sá er hlotið hefur þá náð af Drottni að vera trúr.

26Mín skoðun er að vegna yfirstandandi neyðar sé það gott fyrir mann að vera þannig.

27Ertu við konu bundinn? Leitast þá ekki við að verða laus. Ertu laus orðinn við konu? Leita þá ekki kvonfangs.

28En þótt þú kvongist syndgar þú ekki og ef ógifta konan giftist syndgar hún ekki. En erfitt verður slíkum lífið hér á jörðu. Við því vildi ég hlífa ykkur.

29En það segi ég, systkin, tíminn er orðinn naumur. Hér eftir skulu jafnvel þau sem gift eru vera eins og þau væru það ekki,

30þau sem gráta eins og þau grétu ekki, þau sem fagna eins og þau fögnuðu ekki, þau sem kaupa eins og þau héldu ekki því sem þau keyptu,

31og þau sem njóta heimsins gæða eins og þau færðu sér þau ekki í nyt. Því að heimurinn í núverandi mynd líður undir lok,

32en ég vil að þið séuð áhyggjulaus. Hinn ókvænti ber fyrir brjósti hvernig hann megi þóknast Drottni.

33En hinn kvænti ber fyrir brjósti veraldleg efni svo að hann geti þóknast konunni.

34Hann er tvískiptur. Ógifta konan og mærin bera fyrir brjósti að vera heilagar á sál og líkama svo að þær geti þóknast Drottni. En gifta konan ber fyrir brjósti veraldlega hluti svo að hún geti þóknast manni sínum.

35Þetta segi ég sjálfum ykkur til gagns, ekki til þess að valda ykkur óþægindum heldur til þess að þið getið þjónað Drottni af alúð og einlægni.

36Ef einhver telur sig ekki geta vansalaust búið með heitmey sinni, enda á manndómsskeiði, þá geri hann sem hann vill ef ekki verður hjá því komist. Hann syndgar ekki. Giftist þau.

37Sá þar á móti sem er staðfastur í hjarta sínu og óþvingaður en hefur fullt vald á vilja sínum og hefur afráðið í hjarta sínu að hún verði áfram mey gerir vel.

38Þannig gera þá báðir vel, sá sem kvænist heitmey sinni og hinn sem kvænist henni ekki, hann gerir enn betur.

39Konan er bundin meðan maður hennar er á lífi. En ef maðurinn deyr er henni frjálst að giftast hverjum sem hún vill, aðeins að hann sé trúaður.

40Þó er hún sælli ef hún heldur áfram að vera eins og hún er, það er mín skoðun. En ég þykist og hafa anda Guðs.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help