Jobsbók 31 - Biblían (2007)

1Ég gerði þann sáttmála við augu mín

að líta mey ekki girndarauga.

2Hvaða hlutskipti kom að ofan, frá Guði,

erfðahluti frá Hinum almáttka frá upphæðum?

3Er það ekki glötun hins rangláta

og ófarnaður illvirkja?

4Sér hann ekki vegferð mína

og telur hann ekki öll mín spor?

5Hafi ég farið með tál

og fótur minn hraðað sér til svika,

6þá setji Guð mig á rétta vog

og hann mun viðurkenna sakleysi mitt.

7Hafi spor mín vikið af vegi,

hjarta mitt hlýtt því sem augun sáu

svo að hendur mínar flekkuðust,

8þá neyti annar þess sem ég sáði til

og það sem óx handa mér skal upprætt.

9Hafi hjarta mitt látið tælast af annars manns konu

og hafi ég legið á hleri við dyr náunga míns,

10skal kona mín mala fyrir annan

og aðrir menn leggjast með henni

11því að það væri skömm

og refsivert brot,

12það væri eldur sem gleypti allt niður að rótum

og upprætti allar eigur mínar.

13Hafi ég vanvirt rétt þræls míns og ambáttar

þegar þau deildu við mig,

14hvað gæti ég þá gert ef Guð risi upp

og yfirheyrði mig, hverju mundi ég svara?

15Var það ekki skapari minn sem skapaði þrælinn í móðurlífi,

var það ekki sá sami sem mótaði okkur í móðurkviði?

16Hafi ég synjað bón þurfandi manns

og gert augu ekkjunnar döpur,

17hafi ég borðað bitann minn einn

án þess að deila honum með munaðarleysingjanum,

18nei, frá barnæsku hef ég verið honum sem faðir

og stutt ekkjuna allt frá móðurlífi,

19hafi ég séð klæðlausan mann að dauða kominn

og snauðan mann án ábreiðu,

20hafi lendar hans ekki blessað mig

og ullin af lömbum mínum ekki haldið á honum hita,

21hafi ég slegið hendi til munaðarleysingja

þegar ég sá að ég hafði stuðning í borgarhliðinu,

22þá losni herðablöð mín frá öxlunum

og armur minn brotni í liðnum.

23Já, tortíming frá Guði var skelfing

og fyrir hátign hans megna ég ekkert.

24Hafi ég sett von mína á gull

og sagt að skíragull væri stoð mín,

25hafi ég glaðst yfir miklum auði

því að hönd mín aflaði mikils,

26hafi ég litið skin sólarinnar

og tunglið sem óð dýrlega áfram,

27og hafi hjarta mitt látið tælast á laun

og ég sent handkoss,

28þá væri það refsivert brot

af því að ég hefði afneitað Guði í upphæðum.

29Hafi ég glaðst yfir óförum óvinar míns

og hlakkað yfir böli hans,

30leyfði ég munni mínum ekki að syndga

með því að sækjast eftir lífi hans með formælingum.

31Hafa íbúar tjalds míns ekki sagt:

„Hver varð ekki saddur af kjöti hans?“

32Enginn aðkomumaður þurfti að nátta utan dyra,

ég lauk þeim upp fyrir vegfarendum.

33Hafi ég dulið misgjörðir mínar eins og aðrir

og falið sektina í brjósti mínu

34þar sem ég óttaðist múginn og fyrirlitning ættanna skelfdi mig,

þagði ég og fór ekki út fyrir dyr.

35Ó, að einhver hlustaði á mig.

Hér er undirskrift mín, Hinn almáttki svari mér.

Hefði andstæðingur minn skrifað ákæru

36setti ég hana á öxl mér

og bæri hana eins og blómsveig.

37Ég mundi gera honum grein fyrir hverju spori mínu

og ganga fram fyrir hann sem höfðingi.

38Hafi akurland mitt hrópað gegn mér

og öll plógför þess grátið í einu,

39hafi ég neytt uppskerunnar án endurgjalds

og svipt réttan eiganda þess lífi,

40skal það bera þyrna í stað hveitis,

illgresi fyrir bygg.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help