1Sedekía Jósíason varð konungur eftir Konja Jójakímsson. Nebúkadresar konungur í Babýlon gerði hann að konungi í Júda.
2En hvorki hann sjálfur, þjónar hans né landsmenn hlustuðu á boðskapinn sem Drottinn lagði Jeremía í munn.
3Eitt sinn sendi Sedekía konungur Júkal Selemjason og Sefanía prest Maasejason til Jeremía spámanns með þessi boð: „Bið fyrir oss til Drottins Guðs.“
4Jeremía var frjáls ferða sinna meðal fólksins þar sem hann hafði ekki enn verið settur í fangelsi.
5Her faraós var þá lagður af stað frá Egyptalandi og þegar Kaldear, sem sátu um Jerúsalem, fréttu það hörfuðu þeir frá Jerúsalem.
6Þá kom orð Drottins til Jeremía spámanns:
7Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Segið við Júdakonung sem sendi yður að leita ráða hjá mér: Her faraós, sem lagður er af stað yður til hjálpar, mun snúa aftur til lands síns, Egyptalands.
8Kaldear munu koma aftur og ráðast á þessa borg, taka hana og brenna til ösku.
9Svo segir Drottinn: Blekkið ekki sjálfa yður með því að halda að Kaldear séu í raun farnir fyrir fullt og allt því að þeir eru ekki farnir.
10Þó að þér fellduð allan her Kaldea, sem berst gegn yður, þannig að aðeins nokkrir helsærðir menn væru eftir í tjöldum sínum mundi hver og einn þeirra rísa upp í tjaldi sínu og brenna þessa borg til ösku.
Spámaðurinn í fangelsi11Þegar her Kaldea hafði hörfað frá Jerúsalem undan her faraós
12ætlaði Jeremía að fara frá Jerúsalem til Benjamínslands til að taka þátt í að skipta arfi með ættingjum sínum.
13Þegar hann kom að Benjamínshliði var maður að nafni Jería Selemjason, Hananíasonar, yfirmaður varðliðsins þar. Hann þreif í Jeremía spámann og sagði: „Þú ætlar að gerast liðhlaupi og fara til Kaldea.“
14Jeremía svaraði: „Það er ósatt. Ég ætla ekki að gerast liðhlaupi og ganga í lið með Kaldeum.“ En Jería hlustaði ekki á hann heldur tók hann fastan og fór með hann til höfðingjanna.
15Þeir voru Jeremía reiðir, börðu hann og settu því næst í varðhald í húsi Jónatans ríkisritara því að það hafði verið gert að fangelsi.
16Þannig hafnaði Jeremía í fangaklefa í hvelfingunum. Þar sat Jeremía lengi.
17Þá lét Sedekía konungur sækja hann og spurði hann á laun í höll sinni: „Hefur nokkurt orð komið frá Drottni?“ Jeremía svaraði: „Já, þú verður seldur konunginum í Babýlon í hendur.“
18Því næst sagði Jeremía við Sedekía konung: „Hvað hef ég brotið af mér gegn þér, hirðmönnum þínum og þessari þjóð, fyrst þér setjið mig í fangelsi?
19Hvar eru nú spámenn yðar sem boðuðu: Konungurinn í Babýlon mun ekki ráðast á yður og þetta land?
20En hlustaðu nú og gerðu bón mína, herra minn og konungur. Láttu ekki flytja mig aftur í hús Jónatans ríkisritara því að það yrði minn bani.“
21Sedekía konungur skipaði þá svo fyrir að Jeremía yrði hafður í haldi í forgarði varðliðsins. Hann fékk daglega brauð úr bakaragötunni þar til ekkert brauð var lengur til í borginni.
22Jeremía sat þannig um kyrrt í haldi í forgarði varðliðsins.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.