1Prestar, takið þetta til ykkar:
2Ef þið hlustið ekki og látið ykkur ekki umhugað um að halda nafn mitt í heiðri, segir Drottinn hersveitanna, sendi ég bölvunina yfir ykkur og sný blessun ykkar í bölvun. Já, ég sný henni í bölvun því að þið hafið ekki gætt þessa heils hugar.
3Sjá, ég ógna uppskeru ykkar og eys ásjónur ykkar auri, saurnum frá hátíðum ykkar, og varpa ykkur á haugana frá þeim.
4Þá skuluð þið játa að ég hef skipað ykkur þetta svo að sáttmáli minn við Leví fengi staðist, segir Drottinn hersveitanna.
5Sáttmáli minn var honum líf og heill, hvort tveggja gaf ég honum og guðsótta að auki. Hann átti að óttast mig og sýna nafni mínu lotningu.
6Sönn kenning var í munni hans og svik fundust ekki á vörum hans. Hann fylgdi mér í friði og heils hugar og sneri mörgum frá syndugu líferni.
7Því að varir prestsins varðveita þekkingu og menn leita lögmálsfræðslu af munni hans því að hann er boðberi Drottins hersveitanna.
8En þið hafið vikið af veginum og fellt marga með leiðsögn ykkar. Þið hafið spillt sáttmálanum við Leví, segir Drottinn hersveitanna.
9Ég geri ykkur fyrirlitlega og niðurlægi ykkur frammi fyrir öllu fólkinu af því að þið fylgið ekki mínum vegum og eruð hlutdrægir þegar þið leiðbeinið.
Rofinn sáttmáli Guðs og Ísraels10Eigum við ekki öll sama föður? Hefur einn og sami Guð ekki skapað okkur? Hvers vegna erum við þá svikul hvert við annað og vanhelgum sáttmála feðra okkar?
11Júda hefur svikið og svívirða er drýgð í Ísrael og Jerúsalem því að Júda hefur vanhelgað helgidóm Drottins sem hann elskar. Hann hefur tekið sér dóttur framandi guðs fyrir konu.
12Drottinn svipti þann sem slíkt gerir bæði verjanda og sækjanda í tjöldum Jakobs og svipti hann einnig þeim sem færir Drottni hersveitanna fórnargjafir.
13Að auki gerið þið þetta: Þið hyljið altari Drottins með tárum, með gráti og kveini, því að hann lítur ekki lengur við fórnargjöfunum, þiggur þær ekki framar með gleði úr höndum ykkar.
14„Hvers vegna?“ spyrjið þið. Það er sökum þess að Drottinn var vottur að hjúskaparsáttmála þínum og konunnar sem þú eignaðist í æsku en þú hefur svikið, þótt hún sé förunautur þinn og eiginkona.
15Hefur Drottinn ekki gert þau eitt, eina lifandi veru? Til hvers var þessi eining? Að eignast börn frá Guði. Gætið ykkar þess vegna svo lengi sem þið lifið. Svíktu ekki konuna sem þú eignaðist í æsku.
16Hafi einhver andúð á konu sinni og sendi hana frá sér, segir Drottinn, Guð Ísraels, þá flekkar hann klæði sín með ranglæti, segir Drottinn hersveitanna. Gætið ykkar því á meðan þið lifið og bregðið ekki trúnaði.
Dagur dómsins17Þið þreytið Drottin með orðum ykkar. Þið spyrjið: „Með hverju þreytum við hann?“ Með því að segja: „Sérhver illvirki er góður í augum Drottins, honum þykir vænt um slíka menn,“ eða: „Hvar er Guð sem dæmir?“
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.