Jobsbók 40 - Biblían (2007)

1Drottinn mælti til Jobs og sagði:

2Ætlar ámælismaðurinn að deila við Hinn almáttka?

Sá sem ásakar Guð svari þessu.

Svar Jobs

3Job svaraði Drottni og sagði:

4Nei, ég er léttvægur, hverju get ég svarað þér?

Ég legg hönd mér á munn.

5Einu sinni hef ég talað og svara ekki,

tvisvar og endurtek það ekki.

Önnur ræða Drottins

6Drottinn svaraði Job úr storminum og sagði:

7Gyrtu nú lendar þínar eins og maður.

Nú ætla ég að spyrja þig, þú skalt svara mér.

8Ætlarðu að hafa dóm minn að engu,

dæma mig sekan svo að þú verðir réttlættur?

9Er armur þinn eins og armur Guðs,

geturðu þrumað með sömu raust og hann?

10Skrýddu þig nú hátign og mætti

og klæðstu dýrð og ljóma,

11helltu úr skálum reiði þinnar,

líttu á hrokagikkinn og niðurlægðu hann,

12líttu á hrokagikkinn og auðmýktu hann,

traðkaðu óguðlega niður hvar sem þeir eru,

13hyl þá mold, alla sem einn,

lokaðu þá inni á leyndum stað

14og ég skal lofa þig.

15Líttu á flóðhestinn sem ég skapaði eins og þig,

hann bítur gras eins og naut.

16Sjáðu aflið í lendum hans

og kraftinn í kviðvöðvum hans.

17Hann sperrir halann eins og sedrustré,

sinarnar í lærum hans eru samantvinnaðar,

18beinin eru eirpípur,

leggirnir járnstengur.

19Hann er frumsköpun Guðs,

skapari hans einn getur nálgast hann með sverði

20en fjöllin færa honum afrakstur sinn

og þar eru villtu dýrin að leik.

21Hann liggur undir lótusrunnum,

falinn í sefi og mýrarkeldum,

22lótusrunnar hylja hann skugga,

pílviðir á árbakka umlykja hann.

23Hann hrökklast ekki burt þótt fljótið vaxi,

hann er óhultur þegar Jórdan flæðir í gin hans.

24Hver getur blindað hann og fangað,

sett króka í nasir hans?

25Geturðu veitt krókódílinn á öngul,

þrýst niður tungu hans með færi,

26dregið sefreipi gegnum nasir hans

og stungið krók gegnum kjálka hans?

27Sárbænir hann þig um miskunn

eða talar hann vinsamlega til þín?

28Gerir hann samning við þig

um að þú gerir hann að þræli þínum ævinlega?

29Leikurðu við hann eins og smáfugl,

bindur hann fastan handa stúlkubörnum þínum?

30Þjarka stórkaupmenn um hann

og skipta honum meðal smásala?

31Geturðu þakið húð hans skutlum,

haus hans kastspjótum?

32Leggðu lófa þinn á hann,

settu þér bardagann fyrir sjónir, þú gerir það ekki aftur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help