Fjórða Mósebók 1 - Biblían (2007)

Manntal

1Drottinn talaði til Móse í Sínaíeyðimörk, í samfundatjaldinu, fyrsta dag annars mánaðar á öðru ári eftir að Ísraelsmenn fóru frá Egyptalandi og sagði:

2„Takið manntal hjá öllum söfnuði Ísraelsmanna, teljið hvern ættbálk og hverja fjölskyldu. Þið skuluð telja nöfn allra karla

3sem eru tuttugu ára og eldri, allra vopnfærra manna í Ísrael. Þið Aron skuluð kanna hverja hersveit

4og skal einn maður úr hverjum ættbálki vera ykkur til aðstoðar. Það skulu vera ættarhöfðingjar.

5Þetta eru nöfn mannanna sem eiga að hjálpa ykkur: Frá Rúben: Elísúr Sedeúrsson,

6frá Símeon: Selúmíel Súrísaddaíson,

7frá Júda: Nakson Ammínadabsson,

8frá Íssakar: Netanel Súarsson,

9frá Sebúlon: Elíab Helónsson.

10Frá sonum Jósefs: Frá Efraím: Elísama Ammíhúdsson, frá Manasse: Gamlíel Pedasúrsson,

11frá Benjamín: Abídan Gídoníson,

12frá Dan: Akíeser Ammísaddaíson,

13frá Asser: Pagíel Ókransson,

14frá Gað: Eljasaf Degúelsson,

15frá Naftalí: Akíra Enansson.“

16Þessir menn voru valdir af söfnuðinum. Þeir voru höfðingjar yfir ættum feðra sinna, æðstu höfðingjar Ísraels ætta.

17Móse og Aron létu þá sem höfðu verið valdir ganga fram.

18Á fyrsta degi annars mánaðar stefndu þeir öllum söfnuðinum saman og fólkið lét skrá sig á manntalsskýrslur eftir ættum sínum og fjölskyldum, með nöfnum eftir höfðatölu,

19eins og Drottinn hafði falið Móse. Hann taldi þá í Sínaíeyðimörkinni.

20Synir Rúbens, frumburðar Ísraels, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

21sem taldir voru af ættbálki Rúbens, voru 46.500.

22Synir Símeons, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

23sem taldir voru af ættbálki Símeons, voru 59.300.

24Synir Gaðs, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

25sem taldir voru af ættbálki Gaðs, voru 45.650.

26Synir Júda, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

27sem taldir voru af ættbálki Júda, voru 74.600.

28Synir Íssakars, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

29sem taldir voru af ættbálki Íssakars, voru 54.400.

30Synir Sebúlons, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

31sem taldir voru af ættbálki Sebúlons, voru 57.400.

32Synir Jósefs: Synir Efraíms, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

33sem taldir voru af ættbálki Efraíms, voru 40.500.

34Synir Manasse, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

35sem taldir voru af ættbálki Manasse, voru 32.200.

36Synir Benjamíns, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

37sem taldir voru af ættbálki Benjamíns, voru 35.400.

38Synir Dans, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

39sem taldir voru af ættbálki Dans, voru 62.700.

40Synir Assers, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

41sem taldir voru af ættbálki Assers, voru 41.500.

42Synir Naftalí, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,

43sem taldir voru af ættbálki Naftalí, voru 53.400.

44Þetta voru þeir sem taldir voru, þeir sem Móse taldi ásamt Aroni og höfðingjum Ísraels sem voru tólf að tölu, einn frá hverri fjölskyldu.

45Þannig voru Ísraelsmenn taldir, fjölskylda eftir fjölskyldu, allir vopnfærir menn í Ísrael, tuttugu ára og eldri.

46Þeir sem taldir voru reyndust vera 603.550.

Sérstaða Levíta

47Levítar voru ekki taldir ásamt öðrum Ísraelsmönnum eftir fjölskyldum sínum.

48Drottinn sagði við Móse:

49„Ættkvísl Leví skaltu hvorki telja né taka manntali ásamt öðrum Ísraelsmönnum

50en þú skalt gera Levítana ábyrga fyrir tjaldbúð sáttmálstáknsins, áhöldum hennar og öllu sem henni fylgir. Þeir skulu bera tjaldbúðina og öll áhöld hennar. Þeir skulu gæta hennar og tjalda umhverfis hana.

51Áður en lagt er af stað með tjaldbúðina eiga Levítarnir að taka hana niður og þegar hún kemur á áfangastað skulu þeir reisa hana. Sérhver óviðkomandi, sem nálgast hana, skal tekinn af lífi.

52Ísraelsmenn skulu tjalda hver í sinni búð hjá gunnfána sínum

53en Levítar skulu tjalda umhverfis tjaldbúð sáttmálstáknsins svo að reiði Guðs komi ekki yfir söfnuð Ísraelsmanna. Levítarnir skulu halda reglurnar um tjaldbúð sáttmálstáknsins.“

54Ísraelsmenn gerðu allt þetta. Þeir gerðu allt sem Drottinn hafði lagt fyrir Móse.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help