Hósea 1 - Biblían (2007)

Hórkonan og börn hennar

1Orð Drottins sem barst Hósea Beerísyni þegar Ússía, Jótam, Akas og Hiskía voru konungar í Júda og Jeróbóam Jóasson var konungur í Ísrael.

2Drottinn tók nú að tala til Hósea. Drottinn sagði við Hósea:

„Farðu og gakktu að eiga hórkonu

og eignastu hórbörn

því að landið drýgir hór

og hverfur frá Drottni.“

3Þá fór hann og gekk að eiga Gómer Diblaímsdóttur,

hún varð þunguð og ól honum son.

4Drottinn sagði við hann:

„Láttu hann heita Jesreel

því að eftir skamma hríð

dreg ég ætt Jehú til ábyrgðar

fyrir blóðbaðið í Jesreel

og bind enda á konungdæmi Ísraelsmanna.

5Á þeim degi brýt ég boga Ísraels á Jesreelsléttu.“

6Hún varð aftur þunguð og ól dóttur.

Drottinn sagði við Hósea:

„Gefðu henni nafnið Miskunnarvana

því að ég mun hvorki

miskunna Ísraelshúsi framar né fyrirgefa því.

7En ég mun miskunna Júdahúsi

vegna Drottins, Guðs þess,

en ég mun ekki hjálpa því

með boga, sverði eða bardaga,

hestum eða riddurum,

heldur vegna Drottins, Guðs þess.“

8Þegar Gómer hafði hætt að gefa Miskunnarvana brjóst

varð hún aftur þunguð og ól son.

9Drottinn sagði:

„Láttu hann heita Ekki-lýður-minn

því að þér eruð ekki lýður minn

og ég verð ekki með yður.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help