1Eftir Abímelek reis upp Tóla Púason, Dódósonar, maður af Íssakar, til að frelsa Ísrael. Hann bjó í Samír á Efraímsfjöllum
2og var dómari í Ísrael í tuttugu og þrjú ár. Síðan andaðist hann og var grafinn í Samír.
3Eftir hann reis upp Jaír frá Gíleað og var dómari í Ísrael í tuttugu og tvö ár.
4Hann átti þrjátíu syni sem riðu á þrjátíu ösnufolum og áttu þrjátíu þorp. Eru þau kölluð Jaírsþorp allt fram á þennan dag. Þau eru í Gíleaðlandi.
5Síðan andaðist Jaír og var grafinn í Kamón.
Jefta6Ísraelsmenn gerðu enn að nýju það sem illt var í augum Drottins og dýrkuðu Baala og Astörtur, guði Arams, guði Sídonar, guði Móabs, guði Ammóníta og guði Filistea og yfirgáfu Drottin og dýrkuðu hann ekki.
7Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael og hann seldi þá í hendur Filisteum og í hendur Ammónítum.
8Þeir þjáðu og þjökuðu Ísraelsmenn það ár. Í átján ár þjökuðu þeir alla Ísraelsmenn sem bjuggu í Gíleað hinum megin Jórdanar í landi Amoríta.
9Enn fremur fóru Ammónítar yfir Jórdan til þess að herja á Júda, Benjamín og ætt Efraíms svo að Ísrael lenti í miklum þrengingum.
10Þá hrópuðu Ísraelsmenn til Drottins og sögðu: „Við höfum syndgað gegn þér því að við höfum yfirgefið Guð okkar og dýrkað Baala.“
11En Drottinn sagði við Ísraelsmenn: „Hafa ekki Egyptar, Amorítar, Ammónítar, Filistear,
12Sídoningar, Amalekítar og Midíanítar kúgað ykkur? Þá hrópuðuð þið til mín og ég frelsaði ykkur úr höndum þeirra.
13En þið hafið yfirgefið mig og dýrkað aðra guði. Þess vegna vil ég ekki hjálpa ykkur framar.
14Farið og hrópið til guða þeirra sem þið hafið valið ykkur. Hjálpi þeir ykkur þegar þið eruð í nauðum.“
15Þá sögðu Ísraelsmenn við Drottin: „Við höfum syndgað. Gerðu við okkur það sem þér líkar en frelsaðu okkur í dag.“
16Síðan köstuðu þeir frá sér útlendu guðunum og dýrkuðu Drottin. Gat hann þá ekki unað hremmingum Ísraels.
17Þá var Ammónítum stefnt saman og settu þeir herbúðir sínar í Gíleað. En Ísraelsmenn söfnuðust saman og settu herbúðir sínar í Mispa.
18Herliðið, höfðingjarnir í Gíleað, sögðu hver við annan: „Hver er sá maður sem fyrstur vill hefja ófrið við Ammóníta? Hann skal vera höfðingi yfir öllum íbúum Gíleaðs.“
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.