Fyrri Samúelsbók 13 - Biblían (2007)

Átök við Filistea

1Sál var … ára þegar hann varð konungur og hann ríkti yfir Ísrael …

2Sál valdi sér þrjú þúsund Ísraelsmenn. Voru tvö þúsund með Sál í Mikmas og í fjalllendinu við Betel en þúsund voru með Jónatan í Gíbeu í Benjamín. Alla aðra sendi hann frá sér til tjalda sinna.

3Jónatan drap landstjóra Filistea, sem hafði aðsetur í Geba, og fréttu Filistear það en Sál lét þeyta hafurshorn um allt landið og tilkynna: „Hebrear skulu heyra þetta.“

4Þannig barst öllum Ísrael fréttin: „Sál hefur drepið landstjóra Filistea og þess vegna leggja Filistear hatur á Ísraelsmenn.“ Þá var herinn kallaður saman til fylgdar við Sál í Gilgal.

5Samtímis söfnuðust Filistear saman til að berjast við Ísrael. Þeir höfðu þrjú þúsund stríðsvagna, sex þúsund vagnliða og fjölmennan her sem var sem sandur á sjávarströnd. Þeir héldu nú af stað og settu búðir við Mikmas, austan við Betaven.

6Þegar Ísraelsmenn sáu að þeir voru í hættu, því að þrengt var að hernum, földu þeir sig í gjótum, hellum, klettaskorum, holum og brunnum.

7En sumir fóru yfir Jórdan í land Gaðs og Gíleaðs.

Deila Samúels og Sáls

Sál var um kyrrt í Gilgal og allur herinn sem fylgdi honum skalf af ótta.

8Hann beið þá sjö daga sem Samúel hafði tiltekið. En Samúel kom ekki til Gilgal svo að fólkið tók að yfirgefa Sál og tvístrast.

9Þá sagði Sál: „Komið með brennifórnina og heillafórnina.“ Síðan færði hann brennifórn.

10En einmitt þegar hann hafði lokið við að færa brennifórnina birtist Samúel. Sál gekk þá á móti honum til þess að heilsa honum.

11Þá spurði Samúel: „Hvað hefur þú gert?“ Sál svaraði: „Þegar ég sá að fólkið var tekið að tvístrast frá mér og þú komst ekki á tilteknum tíma og Filistear höfðu safnast saman við Mikmas

12hugsaði ég með mér: Nú halda Filistear gegn mér í Gilgal án þess að ég hafi getað mildað Drottin. Þess vegna vogaði ég mér að færa brennifórnina sjálfur.“

13Þá sagði Samúel: „Þú hefur hegðað þér heimskulega. Hefðir þú fylgt þeim fyrirmælum sem Drottinn, Guð þinn, gaf þér hefði Drottinn fest konungdóm þinn yfir Ísrael í sessi svo að hann hefði staðið um aldur og ævi.

14En nú skal konungdómur þinn ekki standa. Drottinn hefur leitað að manni sér að skapi og ætlað honum að vera höfðingi yfir þjóð sinni því að þú hefur ekki farið eftir því sem hann hefur boðið þér.“

15Samúel hélt því næst af stað og fór frá Gilgal upp til Gíbeu í Benjamín. En Sál kannaði liðið, sem enn var hjá honum, og var það hér um bil sex hundruð manns.

16Sál og Jónatan, sonur hans, og liðið, sem var með þeim, héldu kyrru fyrir í Geba í Benjamín en Filistear höfðu sett búðir sínar við Mikmas.

17Þá héldu ránssveitir út úr herbúðum Filistea í þremur fylkingum. Ein fylkingin hélt í áttina til Ofra í Sjúallandi,

18önnur fylking fór í áttina til Bet Hóron og sú þriðja í átt til hæðarinnar þar sem sjá má eyðimörkina handan við Sebóímdalinn.

19Engan járnsmið var þá að finna í Ísrael því að Filistear hugsuðu með sér: „Ef svo væri mundu Hebrearnir smíða sverð og spjót.“

20Urðu Ísraelsmenn því að fara til Filistea til þess að láta smíða plógjárn, haka, öxi eða sigð.

21Verðið var eitt pim fyrir plógjárn, haka, þrífork og öxi og einnig fyrir að setja odd á broddstaf.

22Því var það að daginn sem kom til bardaga hafði enginn í liði Sáls eða Jónatans sverð eða spjót í hendi. Aðeins Sál og Jónatan, sonur hans, höfðu slík vopn.

23Framvarðarsveit Filistea sótti fram í skarðið við Mikmas.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help