Jobsbók 15 - Biblían (2007)

Annar ræðukafliÖnnur ræða Elífasar

1Elífas frá Teman svaraði og sagði:

2Svarar vitur maður innantómum orðum

og fyllir brjóst sitt austanvindi

3til þess að verja málstað sinn með orðagjálfri?

4Þú brýtur jafnvel guðsóttann niður,

gerir lítið úr íhugun frammi fyrir augliti Guðs.

5Já, sekt þín leggur þér orð í munn

og þú velur þér tungutak lævísra.

6Munnur þinn dæmir þig sekan en ekki ég

og varir þínar vitna gegn þér.

7Fæddist þú fyrstur manna,

komstu í heiminn á undan hæðunum?

8Varstu áheyrandi í ráði Guðs

og aflaðir þér visku þar?

9Hvað veist þú sem vér vitum ekki,

hvað skilur þú sem oss er hulið?

10Öldungar og gráhærðir menn eru á meðal vor,

mun eldri en faðir þinn.

11Nægir þér ekki huggun Guðs,

mildilegt orð til þín talað?

12Hví læturðu hjarta þitt hlaupa með þig í gönur

og hvers vegna skjóta augu þín gneistum

13er þú beinir heift þinni gegn Guði

og lætur þvílík orð þér um munn fara?

14Hvernig getur dauðlegur maður verið hreinn

og sá haft rétt fyrir sér sem er af konu fæddur?

15Hann getur ekki einu sinni treyst sínum heilögu

og himinninn er ekki hreinn í augum hans,

16hvað þá andstyggilegur og spilltur maður

sem svelgir í sig ranglæti eins og vatn.

17Nú ætla ég að kenna þér, hlustaðu á mig,

ég ætla að segja frá því sem ég hef sjálfur séð

18og vitrir menn hafa sagt

og földu ekki fyrir feðrum sínum.

19Þeim einum var landið gefið

og enginn ókunnugur var á meðal þeirra.

20Guðleysinginn kvelst alla ævidaga sína

og ofbeldismaðurinn þau ár sem honum eru mæld,

21skelfingaróp hljóma í eyrum hans,

eyðandinn ræðst gegn honum á friðartímum.

22Hann trúir því ekki að hann sleppi úr myrkrinu,

sverðið bíður hans.

23Hann eigrar um í leit að brauði: „Hvar er það?“

Hann veit að hans bíður dimmur dagur.

24Þrenging og neyð skelfa hann,

bera hann ofurliði eins og konungur búinn til atlögu

25því að hann reiddi hönd sína gegn Guði,

hreykti sér gegn Hinum almáttka,

26hljóp hnakkakerrtur í móti honum

búinn sterkum, hvelfdum skildi

27því að hann safnaði spiki á andlit sitt

og hlóð fitu á lendar sér.

28Hann settist að í eyddum borgum,

í húsum þar sem enginn skyldi búa og átti að leggja í rúst.

29Hann auðgast ekki, auður hans varðveitist ekki

og kornöx hans svigna ekki til jarðar.

30Hann sleppur ekki úr myrkrinu.

Græðlingar hans skrælna í glóandi hita

og hann hverfur í vindinn.

31Hann ætti ekki að reiða sig á hégóma, blekkja sjálfan sig,

því að laun hans verða fánýti.

32Áður en tími hans kemur skrælnar hann

og greinar hans grænka ekki,

33hann líkist vínviði sem missir grænjaxlana

og ólífutré sem varpar frá sér blómum sínum.

34Ófrjór er hópur guðlausra

og eldur gleypir tjöld mútuþega,

35þungaðir kvöl fæða þeir böl,

kviður þeirra elur af sér blekkingu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help