1Tjaldbúðina skaltu gera úr tíu tjalddúkum úr tvinnuðu, fínu líni, bláum og rauðum purpura og skarlati. Þú skalt vefa kerúba með myndvefnaði í dúkana.
2Hver dúkur á að vera tuttugu og átta álna langur og fjögurra álna breiður. Allir dúkarnir eiga að vera jafnstórir.
3Fimm tjalddúkanna skaltu tengja hvern við annan og hina fimm skaltu einnig tengja hvern við annan.
4Þú skalt gera lykkjur úr bláum purpura á jaðri annarrar samfellunnar og eins skaltu gera á jaðri endadúksins í hinni samfellunni.
5Þú skalt gera fimmtíu lykkjur á annan tjalddúkinn og fimmtíu lykkjur á jaðar endadúksins í hinni samfellunni og skulu lykkjurnar standast á.
6Þú skalt einnig gera fimmtíu króka úr gulli og festa dúkana saman með krókunum svo að tjaldbúðin verði ein og óskipt.
7Þú skalt gera tjalddúka úr geitahári til að tjalda með yfir búðina, ellefu tjalddúka.
8Hver dúkur á að vera þrjátíu álna langur og fjögurra álna breiður. Þessir ellefu tjalddúkar skulu vera jafnstórir.
9Þú skalt tengja fimm dúka sér og sex dúka sér en sjötta dúkinn, á framhlið tjaldsins, skaltu leggja tvöfaldan.
10Þú skalt gera fimmtíu lykkjur á jaðar endadúksins í samfellunni og fimmtíu lykkjur á jaðar endadúksins í hinni samfellunni.
11Þú skalt einnig gera fimmtíu króka úr eir og krækja krókunum í lykkjurnar og krækja síðan saman svo að allt verði eitt.
12En það af tjalddúknum, sem út af stendur, helming þess sem út af hangir, skaltu láta hanga niður af bakhlið tjaldbúðarinnar.
13En sú alin, sem nær út fyrir hvorum megin á tjalddúknum endilöngum, á að hanga yfir báðar hliðar tjaldbúðarinnar og hylja þær.
14Þú skalt gera þak yfir tjaldið úr rauðlituðum hrútsskinnum og annað þak úr höfrungahúðum yfir hana.
15Þú skalt gera þiljuborð í tjaldbúðina, borð úr akasíuviði, sem eiga að standa upp á endann.
16Hvert borð á að vera tíu álnir á lengd og hálf önnur alin á breidd.
17Á hverju borði eiga að vera tveir tappar til að tengja þau saman. Þannig skal farið með öll borðin í tjaldbúðina.
18Þannig skaltu gera borðin í tjaldbúðina: tuttugu borð fyrir suðurhliðina
19og þú skalt gera fjörutíu sökkla úr silfri undir þessi tuttugu borð, tvo sökkla undir hvert borð, sinn fyrir hvorn tappa.
20Fyrir hina hlið tjaldbúðarinnar, norðurhliðina, skaltu gera tuttugu borð
21og fjörutíu sökkla úr silfri, tvo sökkla fyrir hvert borð.
22Þú skalt gera sex borð fyrir afturgafl tjaldbúðarinnar sem snýr í vestur
23og þú skalt gera tvö borð fyrir horn tjaldbúðarinnar á bakhliðinni.
24Þau skulu vera tvöföld að neðan og eins að ofan til fyrsta hrings. Þannig skulu þau bæði vera, þau eiga að vera í báðum hornunum.
25Þetta eiga að vera átta borð ásamt sökklum úr silfri, sextán sökklum, tveimur undir hverju borði.
26Þú skalt gera þverslár úr akasíuviði, fimm fyrir þiljuborðin á annarri hlið tjaldbúðarinnar
27og fimm fyrir þiljuborðin á hinni hlið hennar og fimm þverslár fyrir þiljuborðin á bakhliðinni gegnt vestri.
28Miðsláin á að vera á miðjum borðunum endanna á milli.
29Þú skalt leggja borðin gulli og gera hringi úr gulli á þau til að halda þverslánum uppi. Þú skalt einnig leggja slárnar gulli.
30Síðan skaltu reisa tjaldbúðina á þann hátt sem þér var sýnt á fjallinu.
31Þú skalt gera fortjald úr bláum purpura, rauðum purpura og skarlati ásamt tvinnuðu, fínu líni. Þú skalt vefa kerúba með myndvefnaði í tjaldið
32og hengja það með gullnöglum á fjórar súlur úr akasíuviði sem lagðar eru gulli og standa á fjórum sökklum úr silfri.
33Þú skalt hengja fortjaldið á krókana. Síðan skaltu flytja örkina með sáttmálstákninu inn fyrir fortjaldið svo að fortjaldið skilji á milli hins heilaga og hins allra helgasta.
34Því næst skaltu leggja lokið á örkina með sáttmálstákninu inni í hinu allra helgasta.
35En þú skalt setja borðið framan við fortjaldið og ljósastikuna gegnt borðinu við suðurvegg tjaldbúðarinnar, en borðið skaltu setja við norðurvegg hennar.
36Fyrir inngang tjaldbúðarinnar skaltu gera forhengi úr bláum purpura, rauðum purpura og skarlati ásamt tvinnuðu, fínu líni með myndvefnaði.
37Fyrir forhengið skaltu gera fimm súlur úr akasíuviði. Þú skalt leggja þær gulli og naglarnir í þeim skulu einnig vera úr gulli. Þú skalt einnig steypa fimm sökkla úr eir undir þær.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.