Síðari kroníkubók 5 - Biblían (2007)

1Þegar öllu verki Salómons við hús Drottins var lokið flutti hann helgigjafir Davíðs, föður síns, þangað og setti silfrið, gullið og öll áhöldin í fjárhirslu húss Guðs.

Örkin flutt í musterið

2Þá safnaði Salómon til sín í Jerúsalem öldungum Ísraels, öllum ættbálkahöfðingjum og ættarhöfðingjum Ísraels, til þess að flytja sáttmálsörk Drottins frá borg Davíðs, það er Síon.

3Allir Ísraelsmenn komu saman hjá konunginum á hátíðinni í sjöunda mánuðinum.

4Allir öldungar Ísraels komu og Levítarnir tóku örkina

5og fluttu upp eftir ásamt opinberunartjaldinu og öllum hinum heilögu áhöldum sem voru í tjaldinu. Prestarnir, það er Levítarnir, sáu um flutninginn.

6Salómon konungur og allur Ísraelssöfnuður, sem hjá honum var, stóð frammi fyrir örkinni, færðu þar sauði og naut að sláturfórn, slíkan fjölda að hvorki varð talinn né tölu á komið.

7Því næst fluttu prestarnir sáttmálsörk Drottins á sinn stað í innsta herbergi hússins, í hið allra helgasta, undir vængi kerúbanna

8því að þeir þöndu út vængina yfir staðnum þar sem örkin stóð. Kerúbarnir huldu örkina og burðarstangir hennar ofan frá.

9Burðarstangirnar náðu svo langt frá örkinni að enda þeirra mátti sjá framan við innsta herbergið, en ekki utar, og þar hafa þær verið allt til þessa dags.

10Ekkert var í örkinni annað en töflurnar tvær sem Móse hafði sett í hana við Hóreb þegar Drottinn hafði gert sáttmála við Ísraelsmenn eftir brottför þeirra frá Egyptalandi.

11Því næst gengu prestarnir út úr helgidóminum. Allir prestarnir, sem voru viðstaddir, höfðu helgað sig án tillits til þjónustuflokka.

12Levítasöngvararnir Asaf, Heman, Jedútún, synir þeirra og bræður, stóðu í línklæðum austan við altarið með málmgjöll, hörpur og sítara. Hjá þeim stóðu hundrað og tuttugu prestar sem þeyttu lúðra.

13Lúðurþeytararnir og söngvararnir hljómuðu eins og ein rödd þegar þeir fluttu Drottni lofgjörð og þökk. Þegar þeir hófu að lofa Drottin með lúðrablæstri, málmgjöllum og hljóðfæraleik og sögðu: „Hann er góður og miskunn hans varir að eilífu,“ fyllti ský húsið, hús Drottins.

14Gátu prestarnir ekki gegnt þjónustu sinni fyrir skýinu því að dýrð Drottins fyllti hús Guðs.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help