Prédikarinn 2 - Biblían (2007)

Einnig lífsnautnin er hégómi

1Ég sagði við sjálfan mig: Jæja þá, reyndu gleðina og njóttu gæða lífsins. En einnig það var hégómi.

2Um hláturinn sagði ég: Hann er vitlaus. Um gleðina sagði ég: Hverju fær hún áorkað?

3Mér kom til hugar að gæða líkama mínum á víni en láta hjarta mitt þó hafa gát á öllu og að halda fast við heimskuna uns ég sæi hvað mönnum væri til gagns að gera undir himninum alla ævidaga sína.

4Ég vann stórvirki: Ég reisti mér hús, ég gerði mér víngarða,

5jurtagarða og aldingarða og gróðursetti þar hvers kyns aldintré,

6ég bjó mér til vatnstjarnir til þess að vökva skóg í nýrækt,

7ég keypti þræla og ambáttir og ég átti heimafædd hjú. Ég átti einnig meiri hjarðir nauta og sauða en allir þeir sem höfðu ríkt á undan mér í Jerúsalem.

8Ég safnaði mér silfri og gulli og fjársjóðum frá konungum og öðrum löndum. Ég fékk mér söngmenn og söngkonur og sjálft karlmannsyndið, fjölda kvenna.

9Ég varð mikill og meiri öllum þeim er ríkt höfðu í Jerúsalem á undan mér. Speki þraut mig ekki heldur.

10Allt það sem augu mín girntust, það lét ég eftir þeim. Ég neitaði ekki hjarta mínu um nokkurn munað því að hjarta mitt hafði ánægju af eljusemi minni og þetta var afrakstur dugnaðar míns.

11En svo leit ég á öll verk mín, þau sem hendur mínar höfðu unnið, og á þá fyrirhöfn er ég hafði haft af þeim og þá sá ég að allt var það hégómi og eftirsókn eftir vindi og að enginn ávinningur er til undir sólinni.

Speki og heimska

12Ég tók því að virða fyrir mér speki og flónsku og heimsku því að hvað mun sá maður gera er tekur við af konungi? Ekki annað en það sem menn hafa gert fyrir löngu.

13Þá sá ég að spekin ber af heimskunni eins og ljósið ber af myrkrinu.

14Vitur maður hefur augun hjá sér

en heimskinginn gengur í myrkri.

Jafnframt tók ég eftir því að eitt og hið sama kemur fram á öllum.

15Og ég sagði við sjálfan mig: Það sem kemur fyrir heimskingjann kemur einnig fram við mig og til hvers hef ég þá orðið svo frábærlega vitur? Þá fann ég í hjarta mínu að einnig það var hégómi.

16Því að menn minnast ekki hins vitra að eilífu fremur en heimskingjans því að allir verða þeir löngu gleymdir á ókomnum tímum, og deyr ekki jafnt vitur sem heimskur?

17Þá varð ég andsnúinn lífinu. Mér mislíkaði það sem gerist undir sólinni því að allt er það hégómi og eftirsókn eftir vindi.

18Mér varð illa við eigið erfiði sem ég streittist við undir sólinni. Það verð ég að eftirláta þeim manni er kemur eftir mig.

19Hver veit hvort hann verður spekingur eða heimskingi? Þó á hann að ráða yfir öllu því erfiði sem ég hef stritast við og farið viturlega með undir sólinni. Einnig það er hégómi.

20Þá fór svo að hjarta mitt örvænti yfir öllu því erfiði sem ég hafði haft undir sólinni.

21Hafi einhver unnið starf sitt af hyggindum, þekkingu og dugnaði verður hann að selja það öðrum í hendur sem ekkert hefur fyrir því haft. Einnig það er hégómi og mikið böl.

22Hvað fær þá maðurinn fyrir allt strit sitt og hugarangur sem mæðir hann undir sólinni?

23Dagar hans eru honum allir kvöl og starf hans er armæða. Jafnvel á næturnar fær hjarta hans ekki hvíld. Einnig þetta er hégómi.

Lífsgleðin er Guðs gjöf

24Ekkert hugnast mönnum betur en að matast og drekka og láta sál sína njóta fagnaðar af striti sínu. En það hef ég séð að einnig þetta kemur úr Guðs hendi.

25Hver getur matast eða neytt nokkurs án hans?

26Þeim manni, sem honum geðjast, gefur hann speki, þekkingu og gleði en hinn rangláta lætur hann safna og hrúga saman hlutum til að selja þá í hendur þeim sem Guði geðjast. Einnig það er hégómi og eftirsókn eftir vindi.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help