Speki Salómons 9 - Biblían (2007)

Bæn Salómons

1Guð feðranna og Drottinn miskunnarinnar,

þú sem hefur skapað allt með orði þínu

2og gert manninn svo af speki þinni

að hann drottni yfir öllu, sem þú hefur skapað,

3og stýri heiminum af heilagleik og réttlæti

og dæmi dóma af réttsýni.

4Veit mér spekina, sem situr í hásæti þér við hlið,

og hrind mér eigi burt úr hópi þjóna þinna.

5Ég er þjónn þinn og sonur ambáttar þinnar,

veill maður og skammær

og mig skortir skilning á lögum og rétti.

6Enda þótt einhver sé fullkominn meðal manna

væri hann þó einskis verður án spekinnar frá þér.

7Þú valdir mig konung lýðs þíns

og dómara sona þinna og dætra.

8Þú bauðst mér að reisa musteri á þínu heilaga fjalli

og altari í borginni, þar sem þú dvelur,

ímynd tjaldbúðarinnar helgu sem þú lést gera í upphafi.

9Hjá þér er spekin sem þekkir verkin þín

og var viðstödd þegar þú skapaðir heiminn

og veit hvað gleður augu þín

og hvað rétt er, samkvæmt boðum þínum.

10Send þú hana frá heilögum himni

og lát hana koma frá dýrðarstóli þínum

og hjálpa mér í störfum mínum

svo að ég skynji hvað þér er þóknanlegt.

11Því að hún veit og skilur allt

og mun leiða mig hyggilega í verkum mínum

og varðveita mig með dýrð sinni.

12Þá verða verk mín þóknanleg þér

og ég mun stýra lýð þínum réttlátlega

og reynast verðugur hásætis föður míns.

13Hver er sá maður sem þekkir ráð Guðs?

Hver getur ráðið í hvað Drottinn vill?

14Hugsanir dauðlegra manna eru fánýtar

og fyrirætlanir vorar fallvaltar.

15Forgengilegur líkaminn íþyngir sálinni,

jarðnesk tjaldbúðin er fjölsvinnum andanum byrði.

16Naumlega ráðum vér í það sem á jörðu er

og með herkjum finnum vér það sem er innan seilingar.

Hver hefur kannað það sem er á himnum?

17Hver hefur uppgötvað vilja þinn nema þú gæfir honum speki

og sendir honum heilagan anda þinn af hæðum?

18Þannig urðu beinar brautir þeirra sem á jörðu búa

og mönnum lærðist hvað þér er þóknanlegt

og urðu hólpnir fyrir spekina.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help