Sálmarnir 36 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins.

2Syndin talar til hins guðlausa

í fylgsnum hjarta hans,

enginn guðsótti býr í huga hans.

3Honum finnst mikið til um sjálfan sig,

meira en svo að hann sjái og hati synd sína.

4Orðin af munni hans eru tál og svik,

hann er hættur að vera hygginn og breyta rétt.

5Í hvílu sinni hyggur hann á illt,

fetar vonda vegu

og forðast eigi hið illa.

6Drottinn, til himna nær miskunn þín,

til skýjanna trúfesti þín.

7Réttlæti þitt er sem hæstu fjöll,

dómar þínir sem reginhaf.

Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.

8Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð,

mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.

9Þau seðjast af nægtum húss þíns

og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðssemda þinna

10því að hjá þér er uppspretta lífsins,

í þínu ljósi sjáum vér ljós.

11Lát miskunn þína haldast við þá

sem þekkja þig

og réttlæti þitt við þá

sem hjartahreinir eru.

12Lát eigi hrokafulla traðka á mér

eða hrekja mig burt.

13Þar eru illvirkjarnir fallnir,

þeim er steypt um koll

og fá ekki risið upp aftur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help