Síraksbók 9 - Biblían (2007)

Um konur

1Ver eigi afbrýðisamur konunni við barm þér,

það kennir henni aðeins að gera þér illt.

2Gefstu engri konu á vald,

þá verður þú viljalaust verkfæri hennar.

3Leita ekki fundar við léttúðuga konu,

annars kanntu að ánetjast henni.

4Ger þér ekki títt um tónlistarkonu

svo að töfrar hennar fangi eigi hug þinn.

5Einblíndu eigi á meyna,

þá kanntu að þurfa þungar bætur að gjalda.

6Legg ekki lag þitt við skækjur

því þá eyðast þér eigur allar.

7Vertu ekki á gægjum á götum borgar,

eigra eigi um fáfarnar slóðir.

8Festu ei augu á fagurri konu,

starðu ekki á þokka konu annars manns.

Fegurð konu hefur margan leitt afvega,

hún kveikir ástarbríma sem bál.

9Sestu ekki til borðs með giftri konu,

sit eigi með henni að sumbli,

þú gætir hrifist af henni

og það mun valda þér válegum dauða.

Um vináttu

10Yfirgef eigi aldavin,

annar mun aldrei fylla skarð hans.

Nýr vinur er sem nýtt vín,

þú nýtur þess því meir sem það eldist.

11Lít frama syndara eigi öfundaraugum,

ekki veistu nema lífi hans ljúki með hörmung.

12Gleðstu eigi yfir því sem guðlausa gleður,

mundu að þeir eru sekir ævina alla.

13Forðastu þann sem hefur vald til að deyða,

þá þarft þú ekki að óttast um líf þitt.

Þurfirðu að vitja hans gæt þín þá vel,

ella kann hann að deyða þig.

Vit að þú gengur á milli gildra

eins og þú værir vörður yst á borgarmúr.

14Veg og met náunga þinn sem fremst þú megnar

og ráðfær þig síðan við vitra menn.

15Skipstu á skoðunum við hyggindamenn

og allt þitt tal lúti að lögmáli Hins hæsta.

16Ráðvandir menn séu borðnautar þínir,

ótti Drottins sé þitt fremsta hrósunarefni.

Um leiðtoga og valdhafa

17Handaverk hagleiksmanna færa þeim lof

og orð leiðtoga lýðsins birta speki hans.

18Borgin skelfist málgefinn mann

og orðhákur vekur hatur fólksins.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help